Golfbókin eyðilagði golfsumarið mitt 22. nóvember 2011 12:15 Frosti B. Eiðsson, höfundur bókarinnar Golf á Íslandi, þurfti ekki að hafa miklar áhyggjur af vondu höggunum í sumar þar sem hann eyddi meira tíma með myndavélinni úti á golfvelli en golfkylfunum. Fréttablaðið/GVA „
Þetta var mjög stíf vinna í júlí, ágúst, september og október, þá var maður eiginlega að frá klukkan átta á morgnana til fjögur um nóttina,“ segir Frosti B. Eiðsson en hann hefur lagt nótt við nýtan dag að klára bókina Golf á Íslandi sem hæglega mætti kalla „biblíu“ íslenskra kylfinga. Bókin, sem er 240 síður, inniheldur upplýsingar og sögu allra golfvalla á Íslandi auk annars skemmtilegs fróðleiks. Meðal þeirra sem láta ljós sitt skína í bókinni eru Ragnhildur Sigurðardóttir og Birgir Leifur Hafþórsson, margfaldir Íslandsmeistarar í golfi. Frosti, sem er sjálfur mikill kylfingur og hefur verið með lægst sex í forgjöf en er núna með níu, segir bókina eiginlega hafa eyðilagt golfsumarið fyrir sér, hann gráti það þó þurrum tárum. „Þetta var mjög stíf vinna en það jafnast ekkert á við það að vera með myndavélina á lofti, úti á velli, að fylgjast með fólki líða vel og þurfa sjálfur ekkert að hafa áhyggjur af vondu höggunum,“ segir Frosti. Hann bætir því við að það hafi komið honum á óvart hversu margir voru reiðubúnir til að leggja þessu verkefni lið en sjálfur tekur hann rúmlega helming allra mynda sem birtast í bókinni. Golfið hefur notið geysilegra vinsælda hér á landi og hefur breyst úr því að vera svokallað „elítusport“ í að verða íþrótt fyrir alla. Það kemur því ekkert á óvart að fjöldi nafntogaðra einstaklinga skuli leggja til sögur af golfvellinum í bókinni, svo sem Eyjólfur Kristjánsson og Sigmar Vilhjálmsson, kenndur við Hamborgarafabrikkuna. - fgg
Mest lesið Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Lífið samstarf Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Bíó og sjónvarp Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Lífið Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat Sjá meira