Gera fyrsta íslenska vísindaskáldsögutryllinn 22. nóvember 2011 10:00 Tökur hefjast á vísindaskáldsögutryllinum Frosti um miðjan desember. Þær fara fyrst fram í höfuðborginni og svo uppi á jökli eftir áramót. Aðalhlutverkin verða í höndunum á Birni Thors og Önnu Gunndísi en leikstjóri verður Reynir Lyngdal.Fréttablaðið/GVA „
Ef ég kjafta frá því um hvað myndin er þá getur fólk allt eins sleppt því að koma,“ segir Reynir Lyngdal leikstjóri. Um miðjan desember hefjast tökur á nýrri kvikmynd undir leikstjórn Reynis sem hefur hlotið vinnutitilinn Frost. Myndin verður væntanlega fyrsti íslenski vísindaskáldsögutryllirinn og er gerð eftir handriti Jóns Atla Jónassonar. Björn Thors og Anna Gunndís Guðmundsdóttir fara með aðalhlutverkið í myndinni, en hún verður að mestu leyti tekin uppi á Langjökli. Reynir kemur inn í kvikmyndina með tiltölulega skömmum fyrirvara sem leikstjóri þótt hann og handritshöfundurinn Jón Atli hafi verið að bralla ýmislegt saman að undanförnu. Leikstjórinn segir þetta vera ákaflega spennandi verkefni, þeir séu búnir að skoða aðstæður uppi á jökli en tökudagarnir þar verði væntanlega á bilinu tíu til fimmtán. „Auðvitað er þetta eins klikkað og það getur orðið og ekkert ósvipað því að ráða sig á dall. Ég vona bara að Canada Goose-úlpan haldi á mér hita. Maður verður allavega veðurbarinn yfir jólamatnum. En það er líka hugmyndafræðin á bak við myndina, að vera eins „extreme“ og mögulegt er, ögra okkur og koma okkur í þær aðstæður sem myndin gerist í.“ Þrátt fyrir að tökurnar fari fram í aðdraganda jólanna á Reynir von á því að halda jólin heima í faðmi fjölskyldunnar. Anna Gunndís er næstum nýflutt til landsins eftir að hafa búið í Baskahéraði Spánar og lært þar á brimbretti. Hún leikur eitt aðalhlutverkanna í Svörtu kómedíunni hjá Leikfélagi Akureyrar og er núna búin að landa aðalhlutverki í nýrri íslenskri kvikmynd. „Þetta er auðvitað bara fyrst og fremst geðveikt og magnað og ég er jafnvel að fara upp á jökul með flugbjörgunarsveitinni í vikunni til að undirbúa mig sem best,“ segir Anna og bætir því við að það verði sérstaklega gaman að leika á móti Birni Thors, hann sé í sérstöku uppáhaldi. „Ég er bara ofsalega þakklát að fá að stökkva inn í stóra mynd með góðu fólki.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira