Bókarisinn Amazon gefur út svarbréf Bergsveins 19. nóvember 2011 00:01 Bergsveinn Birgisson Þýska forlagið Steidl gaf Svar við bréfi Helgu út í haust fyrir bókamessuna í Frankfurt. Fjögur forlög fylgdu í kjölfarið, þar á meðal Amazon. Fréttablaðið/Daníel
Bókarisinn Amazon er í hópi fimm erlendra forlaga sem hafa keypt réttinn að Svari við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson. Jafn mörg forlög bíða átekta. Fimm stæðileg, erlend forlög hafa keypt útgáfuréttinn að Svari við bréfi Helgu, metsölubók Bergsveins Birgissonar frá því í fyrra. Bókin kom út hjá þýska forlaginu Steidl, sem gefur meðal annars út bækur Gunters Grass og Halldórs Laxness í Þýskalandi, fyrir bókamessuna í Frankfurt. Í haust festi franska forlagið Zulma, sem gefur einnig út bækur Auðar Övu Ólafsdóttur, sér réttinn. Á messunni sjálfri handsalaði Bjartur samning við danska forlagið C&K Forlag og nú í vikunni var gengið frá samningum við spænska forlagið RBA og útgáfurisann Amazon, sem gefur bókina út á ensku undir hatti frumkvöðlaverkefnisins Amazon Crossing. Guðrún Vilmundardóttir hjá Bjarti er að vonum ánægð með góðar viðtökur bókarinnar á erlendri grund. „Þetta eru stór og stæðileg forlög og opnar á mikla möguleika. Ég veit að þýska, franska og spænska forlagið ætla að gera bókinni töluvert hátt undir höfði og hver sigur eykur líkurnar á þeim næsta," segir Guðrún og bætir við útgefendur frá Noregi, Svíþjóð, Tékklandi, Serbíu og Hollandi séu líka áhugasamir um bókina. Spurð um áhrif bókamessunnar í Franfurt á viðtökurnar segir Guðrún þau vera talsverð. „Þýska forlagið, Steidl vildi gefa bókina út fyrir messuna, sem vakti athygli því þýskir útgefendur hafa ekki alltaf hraðar hendur. En þegar það gerist hefur það áhrif. Franski útgefandinn hjó til dæmis eftir því hversu fljótt bók kom út þar í landi. Um leið og íslensk bók kemur út í þýðingu á útbreiddu tungumáli stöndum við líka miklu betur að vígi" Guðrún segir ekki tilgreint í samningum í hversu stóru upplagi Svar við bréfi Helgu kemur út. „Það eina sem getur gefið vísbendingu um hversu mörg eintök þeir ætli að selja sér er fyrirframgreiðslan, sem er óafturkræf, og í tilfelli Bergsveins er hún góð." Samningurinn við Amazon sætir nokkrum tíðindum, enda er enski markaðurinn einn sá erfiðasti fyrir erlenda höfunda að komast á. Guðrún segir samninginn eiga sér nokkurn aðdraganda en ástæðan fyrir því að hann hafi ekki verið handsalaður fyrr en nú sé sú að fleiri enskir útgefendur hafi sýnt bókina áhuga. „Sem er tiltölulega sjaldgæft þegar íslenskar bækur eiga í hlut."
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira