Helgi Pé tekur við Óskastund Gerðar 18. nóvember 2011 18:00 Helgi Pétursson tekur við stjórnartaumunum í Óskastundinni sem er á dagskrá Rásar 1 á föstudögum. Fréttablaðið/anton „
Það er spurning hvað maður gerir við tónlist Ríó Tríó? Ætli ég verði ekki bara að setja einhvern kvóta,“ segir Helgi Pétursson eða bara Helgi Pé, oftast kenndur við Ríó Tríó. Helgi tekur við útvarpsþættinum Óskastundinni sem útvarpskonan Gerður G. Bjarklind hefur stjórnað svo lengi sem elstu menn muna. Og sest í fyrsta skipti við hljóðnemann á sjálfum þrettándanum. Helgi, sem rekur lítið fyrirtæki í kringum jarðhitasýningu í Hellisheiðarvirkjun, segist ætla að fara að fordæmi Gerðar og ekki setja sig í neinar sérstakar stellingar, bara vera hann sjálfur. „Það eru ekki margir sem fara í fötin hennar Gerðar og ef ég ætlaði að gera það myndu nú sennilega einhverjir fjölskyldumeðlimir vilja ræða við mig undir fjögur augu. Ég hef hlustað á þennan þátt Gerðar í gegnum árin og maður þarf ekkert að laga það sem er ekki bilað,“ segir Helgi og bætir því við að Óskastundin sé eitt af sérkennum þessarar litlu þjóðar á þessari litlu eyju. „Þarna kristallast kannski best þessi mikla nánd og skyldleiki, þátturinn er eilítið eins og jólakveðjurnar og dánarfregnir og jarðarfarir, þetta þekkist hvergi annars staðar í heiminum.“ Þetta er hins vegar ekki í fyrsta skipti sem Helgi er á mála hjá RÚV, hann las fréttir í Skúlagötunni, nánast einn í húsinu, fyrir fjörutíu árum þegar Rás 1 var eina útvarpsstöð landsins. „Og þá mátti maður ekki gera mörg mistök án þess að allar línur glóðu. Ég er nú ekki gamall maður en þetta hef ég upplifað.“- fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira