Hin nýja Helga Sig 18. nóvember 2011 19:00 Frú Kitschfríður. Mynd/GVA
Húsráðakver Frú Kitschfríðar kom út í vikunni en þar er að finna ógrynni húsráða sem tímabært er að dusta rykið af. „Frú Kitschfríður er annáluð fyrirmyndarhúsmóðir sem hefur skrifað húsráðapistla í Vikuna í fimm ár. Hún hefur það að markmiði að endurmennta og uppfræða íslenskar húsmæður," segir Sigríður Ásta Árnadóttir, ritari Frú Kitschfríðar. Hún segir ekki veita af á Íslandi þar sem börn og eiginmenn gangi um sjálfala og engum detti í hug að bóna. Frú Kitschfríður lítur á sig sem hina nýju Helgu Sigurðardóttur og finnst kominn tími til að taka upp þráðinn og bæta ástandið. Hún telur sig vel til þess fallna að vera uppfræðara og fyrirmynd í þeim efnum. Bókin byggir á húsráðapistlum hennar og gott betur en þar er líka að finna ráðleggingar um smekkvísi, karlmenn, samræðulist og ýmislegt fleira sem snýr að kvenleikanum. Hún er svo krydduð með nytsamlegum ráðum upp úr bókum frá árunum 1920 til 1967 en í þeim er margt að finna sem ekki má fara forgörðum að mati Frú Kitscfríðar. Í bókinni, sem minnir á gömul kvennatímarit, er að finna fallegar kökumyndir þó ekki séu þar eiginlegar uppskriftir. Frú Kitschfríður gefur lesendum hins vegar eina ekta amríska. Ekta amrísk Angel‘s Food kakaAð hætti Frú Kitchfríðar Í Ameríku er allt fullt af fyrirmyndarhúsmæðrum enn þann dag í dag og kemur þessi uppskrift frá Betty vinkonu minni í Minneapolis. Betty er annáluð fyrirmyndarhúsmóðir og pennavinkona mín frá unglingsárum. 12 eggjahvítur 1½ tsk. Cream of tartar (fæst í bökunarhillum betri verslana) 1½ bolli sykur (amerískur bolli er 3 dl) 1½ tsk. vanilludropar (og aukreitis ofan í húsmóðurina!) ½ tsk. möndludropar (sjá fyrir ofan) 1 bolli sigtað hveiti ¼ tsk. salt Hitið ofninn í 200 gráður. Þeytið eggjahvíturnar ásamt tartarinu á mesta hraða þar til þetta myndar froðu. Bætið þá smátt og smátt ¾ bolla af sykri út í, 2 msk. í einu þar til sykurinn leysist allur upp og hvíturnar líta út eins og skýjabólstrar á góðviðrisdegi. Það er agalega nauðsynlegt að eiga alminlega hrærivél í þetta, stelpur! Smellið bökunardropunum saman við rétt í restina. Sigtið saman hveiti, restina af sykrinum og saltið. Blandið þá hálfum bolla í einu af hveitiblöndunni varlega saman við hvíturnar með sleikju. Alls engan brussugang hér, það má alls ekki slá allt loftið úr hvítunum! Hellið deiginu í 25 cm, ósmurt form. Ekta Angel"s Food-form er með gati í miðjunni. Ef þið ekki eigið svoleiðis, látið þá 20 cm form duga. Takið þá búrhníf og skerið blíðlega gegnum deigið allan hringinn. Bakið í 30-40 mínútur eða svo, eða þar til kakan dúar undir fingri eins og Snælands-svampdýna. Hvolfið kökunni í forminu yfir kæligrind og látið kólna í hálftíma. Smellið í ykkur einhverju styrkjandi á meðan. Nú, eða hrærið smjörkremið. Losið kökuna varlega úr forminu með pönnukökuspaða og hristið lauslega til að ná henni úr forminu. Setjið á lekkeran kökudisk og smyrjið smjörkreminu á. Skreytið með ananashringjum og kokteilberjum, það er alltaf fallegt og klikkar ekki.Smjörkrem ½ bolli smjör við stofuhita 2 bollar sigtaður flórsykur 1 eggjarauða 1 tsk. vanilludropar 1 msk. rjómi Ögn af rauðum matarlit, bleikar kökur eru svo dömulegar! Þeytið saman smjör og sykur. Ef þið gleymduð að taka smjörið tímanlega út úr ísskápnum, er hægt að slá því vandamáli upp í Húsráðakveri frúarinnar, hnegghnegg! Bætið hinu hráefninu við og þeytið áfram. Þykkja má kremið að vild með flórsykri. Fyrirmyndarhúsmæður láta ekkert fara til spillis! Búið til ekta majónes úr afgangsrauðum eða skellið í ekta bernaise handa bóndanum. vera@frettabladid.is
Mest lesið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Lífið Fleiri fréttir Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Sjá meira