Hellisbúinn loksins samþykktur í Kína 16. nóvember 2011 14:00 Óskar Eiríksson, framkvæmdastjóri Leikhúsmógulsins ehf., fékk tvisvar höfnun á leikritinu Hellisbúanum frá Kína en eftir nokkrar breytingar hefur verkið loksins verið samþykkt. Með honum á myndinni er systir hans og annar stjórnenda fyrirtækisins, Signý Eiríksdóttir. Fréttablaðið/valli „
Eftir nokkrar breytingar hefur leikgerðin loksins verið samþykkt í Kína," segir Óskar Eiríksson, framkvæmdastjóri Leikhúsmógulsins ehf. sem ætlar að setja upp leikritið Hellisbúann í Kína á næstu mánuðum. Tvö og hálft ár eru síðan Leikhúsmógullinn byrjaði að vinna í að koma Hellisbúanum að í Kína. Leikritið átti upphaflega að vera sett upp í desember á þessu ári en fresta þurfti frumsýningu um nokkra mánuði þar sem kínversk stjórnvöld voru ekki alveg sátt við handritið. „Allar leikgerðir sem settar eru upp í landinu þurfa að vera lesnar yfir af fulltrúum stjórnvalda í Kína. Það voru einhver atriði sem fóru í taugarnar á þeim og við fengum höfnun fyrst í sumar," segir Óskar. Þá voru nokkrar breytingar gerðar á handritinu en allt kom fyrir ekki og Kínverjar höfnuðu handritinu í annað sinn. „Við vorum svo heppin að fá eitt stærsta nafnið í leikhúsgeiranum þarna úti, David Lightbuddy, til samstarfs við okkur en hann er meðal annars að sjá um uppfærslu Mamma Mia í Kína núna við góðar undirtektir," segir Óskar, en samstarfsaðilar hans úti sáu um að breyta handritinu í annað sinn. „Ég veit ekki nákvæmlega hvaða atriði þeir gerðu athugasemdir við en mig grunar að það hafi kannski eitthvað með kynlífsumræðuna í leikritinu að gera," segir Óskar, en kínversk útgáfa af Hellisbúanum verður frumsýndur í apríl á næsta ári. Næsta skref hjá Óskari er að koma leikritinu á fjalirnar í Kóreu og Ástralíu á næsta ári.- áp
Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf South Park verður South America Lífið Fleiri fréttir Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Sjá meira