Lífið

Blautt dansgólf í Höllinni

Júlí Heiðar.
Júlí Heiðar.
Laugardalshöllin stútfylltist af vongóðum dönsurum á laugardaginn þegar prufur fóru fram fyrir þáttinn Dans Dans Dans.

Einn af þeim sem freistuðu gæfunnar var tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson. Júlí Heiðar komst áfram, ásamt dansdömu sinni, Telmu Rut Sigurðardóttur, og eiga þau því eftir að dansa fyrir sjónvarpsáhorfendur í byrjun nóvember.

Júlí Heiðar gerði garðinn frægan fyrir nokkrum misserum með laginu Blautt dansgólf og því má ekki ólíklegt telja að dansarinn hafi skilið eftir blautt dansgólf í Laugardalshöll um helgina. Þeir dansarar sem komust áfram í keppninni hafa þegar verið settir í fjölmiðlabann og mega því ekki tjá sig um keppnina fyrr en henni lýkur í desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.