Gera fleiri myndir um Þór 4. október 2011 10:00
Fyrirtækið Caoz vill gera nokkrar teiknaðar framhaldsmyndir um Þór þrumuguð og persónur norrænu goðafræðinnar. Fyrsta myndin verður frumsýnd 14. október. Framleiðandinn Arnar Þórisson hjá fyrirtækinu Caoz vonast til að þrjár til fjórar teiknimyndir byggðar á þrumuguðinum Þór og persónum norrænu goðafræðinnar verði framleiddar hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram í viðtali sem hið virta kvikmyndatímarit Hollywood Reporter tók við hann. Undirbúningurinn fyrir næstu mynd um Þór er þegar hafinn og á hún að gerast á eftir Legends of Valhalla: Thor, sem verður frumsýnd hér á landi í þrívídd 14. október. „Við sjáum til hvernig þessari mynd vegnar áður en við ráðumst af fullum krafti í gerð næstu myndar," sagði Arnar í viðtalinu. Fram kemur Caoz sé búið að selja myndina til 55 landa, þar á meðal hinna Norðurlandaríkjanna, Þýskalands, Ítalíu og Rússlands. Myndin hefur ekki enn verið seld til Bandaríkjanna eða Bretlands og segir Arnar ekki nauðsynlegt að koma henni á hinn erfiða bandaríska markað til að myndin gangi upp fjárhagslega. Kostnaður hljóðar upp á rúma 1,3 milljarða íslenskra króna, sem er tífalt meira en meðalmynd á Íslandi kostar, að sögn Arnars. Í viðtalinu segir hann að bankahrunið á Íslandi hafi næstum því stöðvað framleiðsluna, sem stóð yfir í sjö ár, jafn langan tíma og tók Pixar að búa til fyrstu Toy Story-myndina. Arnar lítur jafnframt á það sem kost að leikna Hollywood-myndin um Þór hafi komið út í sumar. Hún hafi opnað augu margra fyrir þrumuguðinum og norrænni goðafræði, þrátt fyrir að hann hafi haft einhverjar áhyggjur af gerð myndarinnar til að byrja með. Við þetta er því að bæta að Caoz hefur skrifað undir samning við norræna útgáfu- og efnisveiturisann Egmont. Samningurinn felur í sér að Egmont verður fulltrúi myndarinnar og vörumerkisins á Norðurlöndunum og á völdum mörkuðum í Norður-Evrópu og mun bera ábyrgð á sölu allra hliðarvara sem bera vörumerkið Legends of Valhalla, eða Hetjur Valhallar eins og það heitir á íslensku. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Fleiri fréttir Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Sjá meira