Ef þau væru á lífi í dag 5. október 2011 22:00 Marilyn Monroe hefur oft verið hressari, en óheilbrigt líferni hefur tekið sinn toll.
Heimurinn hefur stökkbreyst á þeim árum sem liðin eru frá dauða stjarna á borð við Kurt Cobain, Marilyn Monroe, John Lennon og Janis Joplin. Þau fengu ekki tækifæri til að skrifa inn á Twitter-síðu, berjast gegn ólöglegu niðurhali á tónlist sinni eða fljúga um loftin blá í sérstökum flugbílum. Þetta síðasta hefur reyndar ekki enn orðið að veruleika, en blaðamaðurinn Atli Fannar Bjarkason og teiknarinn Halldór Baldursson gerðu heiðarlega tilraun til að rýna í líf stjarnanna, væru þær á lífi í dag.MARILYN MONROE - 85 ÁRA Marilyn Monroe hefur oft verið hressari, en óheilbrigt líferni hefur tekið sinn toll. Eftir að blómlegum kvikmyndaferli Marilyn Monroe lauk tók við erfið barátta við elli kerlingu. Monroe er bundin við hjólastól, ekki endilega vegna aldurs heldur hefur óheilbrigt líferni tekið sinn toll. Þrátt fyrir það lætur hún óhóflegar útlitskröfur stjörnuborgarinnar hafa mikil áhrif á sig og hefur farið í ótal lýtaraðgerðir og skartar enn ljósu lokkunum sem hún er svo fræg fyrir. Hún hefur aldrei tileinkað sér tækninýjungar á borð við Twitter og Facebook og heldur sig til hlés ásamt tvítugum elskhuga sem fólk telur að sé á eftir auðævum hennar.Janis Joplin er virkur tónlistarmaður og enn þá virkari alkahólisti.JANIS JOPLIN - 68 ÁRAJanis Joplin er virkur tónlistarmaður og enn þá virkari alkahólisti. Stjarna Janis Joplin hefur ekki skinið skært undanfarin ár, en hún hættir þó aldrei að syngja og gefa út plötur með ýmsum hljómsveitum. Hún hefur átt í harðri baráttu við Bakkus og farið í ótal meðferðir, án árangurs. Hvort sem áfengið hjálpar til eða ekki þá er hún alltaf hress, heimsækir John Lennon vin sinn oft og reglulega berast fréttir af því að „Pearl" hafi splæst drykkjum á almúgann á ölknæpum víða um heim. Stöðugar vangaveltur um kynhneigð Joplin valda henni litlu hugarangri og hún kýs að tjá sig lítið um einkalífið í fjölmiðlum og því síður á Twitter.Kurt Cobain, umhverfisaktívisti og misheppnaður leikari.KURT COBAIN - 44 ÁRAUmhverfisaktívisti og misheppnaður leikari. Kurt Cobain endurvekur Nirvana. Eftir áralanga bið hefur hljómsveitin Nirvana ákveðið að koma saman á ný, en hún ætti um miðjan tíunda áratuginn. Kurt Cobain hefur verið einfari síðustu ár, grænmetisæta, umhverfisaktívisti og hálfgerður trúbador. Hann hefur sent frá sér misgóðar kassagítarplötur, en virðist vera kominn á hausinn þar sem Nirvana er á leiðinni í tónleikaferðalag um heiminn. Cobain er mjög virkur á Twitter og nýtir miðilinn til að berjast fyrir réttindum dýra og plantna. Cobain hefur einnig reynt að koma sér framfæri í Hollywood, en án árangurs enda vonlaus leikari.Lennon er kominn út úr skápnum en vill ekki endurvekja Bítlana.JOHN LENNON - 71 ÁRSJohn Lennon er kominn út úr skápnum en vill ekki endurvekja Bítlana. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir útgáfufyrirtækja og Pauls McCartney fæst John Lennon ekki til að endurvekja Bítlana. Ekki einu sinni til að koma fram á minningartónleikum um George Harrison. Lennon er löngu búinn að losa sig við Yoko, kominn út úr skápnum og lifir fábrotnu lífi í ótilgreindu hitabelti ásamt helmingi yngri elskhuga þar sem hann kemst í snertingu við náttúruna á hverjum degi. Hann heldur áfram að senda frá sér tónlist, en aðeins allra hörðustu aðdáendurnir eru enn þá á hans bandi og þykjast skilja tónlistina. Lennon er með Twitter-síðu sem hann uppfærir sjaldan með boðskap, sem er eins og tónlist hans, óskiljanlegur í augum fjöldans.
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fleiri fréttir „Ef þú ætlar að vera með samviskubit, hafðu þá samviskubit yfir réttu hlutunum“ „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Sjá meira