Lífið

Sjónarhorn fuglsins

Sigurgeir Sigurjónsson tók myndirnar í bókinni úr flugvélum og þyrlum. Hann segist hafa náð óvæntari vinklum á myndirnar úr flugvélunum.
Sigurgeir Sigurjónsson tók myndirnar í bókinni úr flugvélum og þyrlum. Hann segist hafa náð óvæntari vinklum á myndirnar úr flugvélunum.
Skipagerðisós á Landeyjasandi.
Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari opnar sýningu í Hafnarborg fyrir helgi í tilefni af útgáfu nýrrar ljósmyndabókar sinnar, Yfirsýn.

„Ég ákvað að reyna ekki að dekka allt landið heldur bara Suðurland. Ég var á höttunum eftir áhugaverðum formum og þurfti ekki að fara langt til að finna þau. Ég hefði getað gert heila bók bara um Landeyjasand," segir Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari. Yfirsýn, sýning í tilefni útgáfu samnefndrar ljósmyndarbókar Sigurgeirs opnaði í Hafnarborg.

Sigurgeir hefur lengi verið einn helsti ljósmyndari landsins og telst honum til að Yfirsýn, þar sem lesendur sjá landslag með sjónarhorni fuglsins, sé sú fjórtánda eða fimmtánda í röðinni af ljósmyndabókum hans. Hugmyndin kviknaði út frá auglýsingaverkefni sem ljósmyndarinn vann fyrir Bandaríkjamarkað fyrir nokkrum árum.

„Ég hef unnið nokkuð stíft að þessari bók í heil fimm ár. Í upphafi hélt ég að ég þyrfti að taka allar myndirnar úr þyrlu, en komst svo að því að það er ekkert verra að mynda úr flugvél. Þannig náði ég óvæntari vinklum," segir Sigurgeir og bætir við að bókin hafi tekið miklum breytingum í þessu langa vinnuferli. „Ég hef farið sífellt nær og afraksturinn er orðinn dálítið malerískur. Ég gæti trúað að þetta sé stærsta bók sem gefin hefur verið út á Íslandi. Hún er eiginlega eins og mubla. Með kassanum er hún eins og fasteign," segir Sigurgeir og hlær.

kjartan@frettabladid.is

Skeiðarársandur Sigurgeir hefur unnið að gerð bókarinnar í fimm ár. myndir/sigurgeir Sigurjónsson
Við Hólmsá





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.