Casper og Frank undirbúa Klovn 2 7. september 2011 21:00 Casper og Frank Hvam ætla að gera Klovn 2 á næsta ári. Þeir ganga jafnframt með hugmynd að annarri mynd í maganum. Fréttablaðið/Valli
Dönsku háðfuglarnir Casper Christensen og Frank Hvam eru að undirbúa sig fyrir nýja uppistandssýningu sem verður frumsýnd í byrjun október. Og þeir eru reiðubúnir að skella sér aftur í trúðsgallann. Klovn 2 verður að veruleika samkvæmt viðtali Jyllands-Posten við grínistann Casper Christensen. „Við höfum ákveðið að gera eina mynd í viðbót en ég get ekki tjáð mig um hvað myndin fjallar um, við höfum bara tekið þessa ákvörðun,“ hefur blaðið eftir Casper. Frank Hvam lét hafa eftir sér í samtali við Fréttablaðið þegar trúðarnir heimsóttu Ísland að það væri allsendis óvíst að Klovn 2 yrði gerð. „En ef við fáum góða hugmynd og höfum áhuga þá gerum við auðvitað aðra mynd,“ sagði hann þá. Þessi tíðindi ættu ekki að þurfa koma mörgum í opna skjöldu því tæplega níu hundruð þúsund Danir sáu myndina í bíó, hún gerði góða hluti í Noregi og Íslendingar flykktust í bíó til að sjá trúðana fara á kostum. „Þetta mun gerast á næstu átján mánuðum enda er þetta kvikmynd. Og maður gerir ekki bara kvikmynd upp úr þurru, slíkt tekur sinn tíma. En við viljum gera meira af Klovn og það ætlum við að gera,“ segir Casper og bætir því við að þeir gangi jafnframt með hugmynd að annarri mynd í maganum sem tengist Klovn-tvíeykinu ekkert. „Við vitum ekki alveg hvor þeirra verður á undan.“ Casper og Frank eru að skríða út úr skelinni eftir ævintýrið í kringum Klovn-kvikmyndina, þeir eru nú að undirbúa uppistandssýningu sem fer á fjalirnar í október og heitir Casper og Frank. Nu som mennesker eða Casper og Frank. Í eigin persónu. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira