Elsa María gerist vínframleiðandi 22. ágúst 2011 10:00 Elsa María ásamt föður sínum, Jakobi, og Ólafi Erni, veitingamanni af Dill, með líkjörin Björk og snafsinn Birki. Drykkirnir verða formlega kynntir til leiks á morgun. Fréttablaðið/valli „
Nei, ég átti nú ekki von á því að enda sem vínframleiðandi,“ segir fyrrverandi Kastljósstjarnan Elsa María Jakobsdóttir. Hún og pabbi hennar, mjólkurfræðingurinn Jakob Svanur Bjarnason, hafa ásamt Ólafi Erni Ólafssyni og Gunnari Karli Gíslasyni af veitingastaðnum Dill þróað líkjör og snafs sem unnir eru upp úr íslensku birki. Líkjörinn nefnist Björk en snafsinn Birkir og verða drykkirnir formlega kynntir til leiks á morgun. Elsa segir þetta eiga sér sinn aðdraganda. Pabbi hennar hafi verið að gera tilraunir með birki og svo hafi hún heyrt af því að Ólafur og Gunnar væru í svipuðum pælingum í eldhúsinu hjá sér. „Það voru einhvern veginn allir að hugsa það sama og það var bara ákveðið að sameina þessi verkefni undir einn hatt.“ Fjórmenningarnir leituðu til Catco vína í Borgarnesi sem framleiðir meðal annars Reyka vodka og segir Elsa að þar hafi þau mætt miklum skilningi. „Við fengum að gera alls konar tilraunir inni á gólfi hjá þeim.“ Elsa segir norræna birkið vera einstakt að því leyti að það sé sætt á bragðið. Því hafi legið í augum uppi að nota birkið, það sé enda líka frumbyggi Íslands. Þetta verður eitt af síðustu verkefnum Elsu hér á landi því hún heldur brátt utan til Kaupmannahafnar, þar sem hún hyggst setjast á skólabekk en hún kláraði nýverið BA-verkefni sitt í félagsfræði við Háskóla Íslands. „En ég verð eitthvað með puttana í þessu frá Danmörku.“- fgg
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira