Frostrósa-aðdáendur vilja hitta Jóhönnu 18. ágúst 2011 14:00 Fáir leggja sennilega jafnmikið á sig til að komast á Frostrósir og þeir Craig Murray og Darryl Brown. Þeir ætla að koma aftur í ár og vilja jafnframt eiga fund með Jóhönnu Sigurðardóttur. „
Við höfum verið saman í tuttugu ár og það er ein af ástæðum þess að við ætlum að koma aftur. Svo verð ég líka fimmtugur um þetta leyti,“ segir Craig Murray, Frostrósa-aðdáandi númer eitt frá Ástralíu. Fréttablaðið greindi frá því í fyrra þegar Murray og sambýlismaður hans, Darryl Brown, komu sérstaklega til Íslands til að fara á jólatónleika Frostrósa. Þeir félagar voru himinlifandi með ferðina hingað og ákváðu að endurtaka leikinn í ár. Craig upplýsir meðal annars að þeir ætli sér að dvelja ögn lengur en síðast. „Við erum að vonast til að komast á tónleikana í Reykjavík þótt tónleikarnir á Akureyri hafi verið mjög fínir á síðasta ári,“ segir Craig. Fréttablaðið hafði samband við Samúel Kristjánsson hjá Frostrósum til að forvitnast fyrir um hvenær tónleikarnir færu fram en hann sagði nákvæma tímasetningu ekki vera komna. „Hins vegar eiga Frostrósir tíu ára afmæli í ár og það má því búast við einhverjum herlegheitum í kringum þau tímamót.“ Craig og Darryl hlakka hins vegar mikið til ferðarinnar til Íslands og Craig segir að þá langi mikið til að hitta eina manneskju. „Okkur langar mikið til að hitta forsætisráðherrann ykkar, Jóhönnu Sigurðardóttur. Við urðum svo glaðir þegar við heyrðum af því að hún hefði gengið að eiga sambýliskonu sína. Það yrði virkilega skemmtilegt ef við gætum komist á hennar fund.“ - fgg
Mest lesið Eric Dane er látinn Lífið Hlægileg sjálfsfróun og hryðjuverk á Wuthering Heights Gagnrýni Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Lífið Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Lífið Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Lífið Frá einni ofurbombu til annarrar Lífið Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Lífið Þeim fjölgar sem skilja Lífið Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Lífið Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar Lífið Fleiri fréttir Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina „Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar „Ég skal rétta þjófinum 60.000 kall og óska honum góðs dags“ Tannlæknir sem tannkrem á öskudaginn Keyptu 250 fermetra hús í Andalúsíu á fjörutíu milljónir Handtekinn fyrir að sýna typpið LaBeouf buffaði tvo og sambandið búið spil Pedro Pascal og Rafa saman á Valentínusardag „Ég er alltaf þreyttur á sjálfum mér“ Hætti að drekka og flutti til Balí Vatnaskil hjá Draugum fortíðar: „Dálítið sérstakt að upplifa það að rekast á vegg“ Maguire hlóð rafhlöðurnar á Fróni Albert gaf Villa málverk af mótorhjólaferðinni Tók í spaðann á Gene Simmons: „You would be popular in jail“ Epstein sem Drakúla endurfæddur Birgir Hákon orðinn pabbi Sjá meira