Kanye átti Tívolí í Köben 18. ágúst 2011 19:00 Kanye West var svalur á sviðinu í Tívolí í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Nordicphotos/Getty
Bandaríski tónlistarmaðurinn Kanye West tróð upp í Tívolíinu í Kaupmannahöfn í síðustu. Íslendingaskarinn þar var slíkur að greina mátti íslensku úr öllum áttum. Orðin „þetta er geðveikt“ og „alger unaður“ voru algengust. Birgir Þór Harðarson var á svæðinu og lýsir hér upplifun sinni. Það var grenjandi rigning þegar fyrirpartíið hófst á Norðurbrú fimmtudaginn 11. ágúst. Tívolí-garðinum var lokað um daginn svo hægt væri að gera klárt fyrir tónleikana og hann opnaður aftur klukkan 18. Tónleikarnir sjálfir hófust ekki fyrr en klukkan 22 um kvöldið. Ég heyrði af fullt af fólki sem hafði mætt á slaginu 18 og fengið mjög gott pláss framarlega í mannhafinu. Við mættum þegar klukkan var farin að ganga tíu og fengum því ekkert ofboðslega gott pláss. Það var þó í lagi því risastór skjár sýndi öll smáatriðin sem ég hefði annars misst af. Það var ótrúlegt hversu rúmt var um alla 15.000 tónleikagestina á tónleikasvæðinu í Tívolí. Svæðið er nefnilega ekki mjög stórt. Rigningin buldi á gleraugunum mínum þegar kunnuglegir tónar heyrðust. Hr. West hóf tónleikana á Dark Fantasy af síðustu sólóplötu sinni, My Beautiful Dark Twisted Fantasy. Kanye-menn vita að fyrsta línan í laginu er á „Can we get much higher?“ eða „komumst við nokkuð hærra?“. Hr. West sannaði að hann kæmist hærra því upp úr miðjum mannskaranum reis lyfta og fyrir ofan okkur stóð Kanye og sagði: „Ég hafði ímyndað mér þetta í Chicago!“. Hr. West hefði ekki getað sett viðmiðið hærra en í þessu fyrsta lagi. Hann hélt áfram að toppa sjálfan sig í gegnum alla tónleikana þar sem hann tók alla slagarana sína. Flottur á sviðiEn það voru ekki aðeins ljúfir og auto-tjúnaðir tónar hr. West sem gerðu tónleikana að ótrúlegri upplifun. Kanye West bjó nefnilega til flottasta sjónarspil sem ég hef séð á tónleikum síðan ég sá Sigur Rós í Höllinni. Dansarar geta gert helling fyrir sýninguna og þegar þeir eru að veifa risastórum segldúki yfir öllu sviðinu erum við jafnvel að tala um eitthvað mjög kúl. Ljósin voru einnig geðveik og sviðsreykurinn gerði ljósin enn svalari. En ekki hvaða band sem er getur skapað svona stemningu. Kanye West hefur það fram yfir marga að hann er alveg drullusvalur! Fötin sem hann hóf tónleikana í voru óendanlega töff og svo áður en ég vissi af var hann mættur í einhvern nettasta leðurjakka sem ég hef séð. Og það sást í uppklappinu að hann var ánægður með hversu kúl hann er. UppklappiðÉg vissi eiginlega ekki að tónleikarnir væru búnir því fagnaðarlætin voru svo gríðarleg þegar laginu Stronger lauk og sviðið hvarf í reyk. Ætli það hafi ekki liðið svona tvær mínútur áður en E-nótan sem markar upphaf lagsins Runaway hljómaði. Þegar reykurinn steig til himna birtist hr. West í rauða jakkanum, á upphækkun á sviðinu fyrir framan hljómborð. Það tóku allir undir þegar hann hóf upp auto-tjúnaða rödd sína í síðustu lögunum. Það var ekki fyrr en tónleikarnir voru búnir að ég áttaði mig á því hversu gegnvotur ég væri og að ég væri búinn að týna vinum mínum í mannhafinu. Það kom ekki að sök því það fyrsta sem ég heyrði var á íslensku: „Þetta var geðveikt!“
Mest lesið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira