Lífið

Einstök stund fyrir okkur

Ólafur Björn Loftsson tryggði sér keppnisrétt á Wyndham-meistaramótinu í golfi um helgina. Foreldrar hans eru sömuleiðis miklir golfarar og íhuga að fljúga út til að styðja við bakið á stráknum.

„Þetta var bara eins og draumur,“ segir Kristín Björnsdóttir, móðir Ólafs Björns Loftssonar, kylfings úr Nesklúbbnum á Seltjarnarnesi. Ólafur tryggði sér sæti á Wyndham-meistaramótinu í Norður-Karólínu um helgina, en það er hluti af bandarísku mótaröðinni, PGA. Hún er sú sterkasta í heimi en meðal þeirra sem hafa skráð sig til leiks eru Justin Leonard, Jim Furyk, Ernie Els og Vijay Singh, allt kylfingar í fremstu röð. Skjár golf verður með beina útsendingu frá mótinu alla dagana.

Ólafur á ekki langt að sækja hæfileikana í golfi því faðir hans, Loftur Ólafsson, varð Íslandsmeistari í greininni árið 1972 á Grafarholtsvelli í Reykjavík. Loftur og Kristín sátu bæði límd við tölvuna á heimili sínu í Garðabæ á sunnudagskvöldið og náðu sér í beina útvarpslýsingu frá síðustu fjórum holunum á vefsíðunni golfstats.com. „Þetta var öðruvísi en maður hefur átt að venjast en var bara gríðarlega gaman og maður lifði sig vel inn í lýsinguna,“ segir Loftur sem viðurkennir að hafa smitað soninn af golfbakteríunni. Hann hafi hins vegar náð þessum árangri upp á eigin spýtur. Ólafur sagði í samtali við fjölmiðla á sunnudag að hann hefði aldrei púttað jafnvel og Loftur upplýsir að þau hafi verið til vandræða hjá honum. Um helgina small hins vegar allt saman og Ólafur sannaði það sem pabbinn vissi alltaf, að hann væri hörkugóður kylfingur.

Kristín er engin eftirbátur karlanna í golfinu og segist reyndar vera sú sem dregur karlinn út á golfvöll um þessar mundir. „Ég fiktaði aðeins við golfið þegar ég var yngri og var að kynnast Lofti. En svo þegar maður var kominn með börn og vann fulla vinnu þá gafst ekki mikill tími til að stunda íþróttina. Þegar Ólafur byrjaði hins vegar að æfa og fara í keppnisferðalög þá fór mamman náttúrulega alltaf með og þá kom þetta eiginlega bara af sjálfu sér,“ segir Kristín.

Kristín og Loftur viðurkenna að þau séu að skoða þann möguleika að fara út til Bandaríkjanna til að styðja við bakið á stráknum. „Það er enda ekki á hverjum degi sem svona tækifæri gefast og það væri gríðarlega gaman.“

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.