Smellur Larsens í íslenskri mynd 15. ágúst 2011 12:30 „
Lagið smellpassar inn í myndina," segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Á annan veg, sem verður frumsýnd 2. september. Hafsteinn og félagar fengu á dögunum leyfi til að nota lagið Midt om natten eftir danska tónlistarmanninn Kim Larsen í mynd sína. „Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem er veitt leyfi til að nota lagið, fyrir utan í kvikmyndinni Midt om natten," segir Hafsteinn. Midt om natten er í miklu uppáhaldi hjá Hafsteini. Hann bað framleiðendur kvikmyndarinnar Á annan veg að útvega leyfi til að nota lagið og því var haft samband við útgáfurisann EMI, sem sér um þau mál fyrir Larsen. Þar á bæ voru menn ekki bjartsýnir. „Svo skrifuðu þeir til baka, alveg gáttaðir á að hann hafi gefið leyfi og að hann hefði aldrei gert það áður. Það hefur margoft verið beðið um lagið," segir Hafsteinn. En kanntu einhverja skýringu á skyndilegri viðhorfsbreytingu Larsens? „Nei. Ætli við höfum ekki hitt á hann á góðu mómenti, á kránni á föstudagseftirmiðdegi eða eitthvað svoleiðis. Hann hefur verið í stuði." En svífur danskur andi yfir vötnum í myndinni? „Nei. Hún er alveg rammíslensk." Sýnishornið úr myndinni má sjá hér fyrir ofan en það var frumsýnt á Vísi í síðustu viku. Áhugasömum er einnig bent á Facebook-síðu myndarinnar fyrir nánari upplýsingar. - afb
Mest lesið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Sjá meira