Sendir frá sér nýtt lag í gamla stílnum 15. ágúst 2011 09:30 Nýr smellur á leiðinni Gylfi Ægisson og Sólmundur Hólm í hljóðveri við upptökur á Feðraveldinu, nýju lagi eftir Sólmund. Lagið fer í spilun í þessari viku eða þeirri næstu.Fréttablaðið/HAG „
Þetta er svona sveitastuðlag. Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar maður heyrir það er hlöðuball,“ segir Sólmundur Hólm, grínisti og verðandi poppari. Á næstu dögum sendir Sóli, eins og hann er jafnan kallaður, frá sér lag sem hann flytur með Gylfa Ægissyni. Eins og alþjóð veit skrifaði Sóli ævisögu Gylfa árið 2009. „Ég samdi lagið með okkur í huga,“ segir hann. „Það hefur alltaf blundað smá poppari í mér og ég er mikið fyrir íslenska tónlist. Helst gamla íslenska tónlist, ég er ekki mikið að endurnýja mig,“ segir Sóli sem segist sannfærður um að ef lagið hefði komið út fyrir þrjátíu árum þá hefði hann orðið stórstjarna: „Þetta er gamaldagspopp en ég vona að það virki enn þá. Þegar Gylfi var stórstjarna hefði hann gert þetta að smelli. Hann hefði gaulað þetta blindfullur inni í Hljóðrita.“ Lagið kallast Feðraveldið og er tvísöngur feðga. Sonurinn syngur um galla föður síns og faðirinn svarar á móti. Sóli fullyrðir að lagið sé dramatískt en skemmtilegt. Hann segir að lagið sé ekki byggt á eigin reynslu, þó að skilnaðarbörn eins og hann sjálfur geti eflaust samsamað sig ýmsu sem fram kemur í textanum. „En pabbi minn er ekki eins slæmur og sá sem sungið er um í laginu,“ segir hann og hlær. Sóli hefur getið sér gott orð fyrir eftirhermur sínar og er hann vinsæll skemmtikraftur á mannamótum. Einn af þeim sem hann hermir eftir er einmitt Gylfi Ægis svo það ætti ekki að reynast honum erfitt að flytja lagið opinberlega. „Nei, einmitt. Ég syng bara fyrir Gylfa líka. Ætli næsta skrefið verði svo ekki að taka upp lag með Pálma Gunnars? Eða Gunnari í Krossinum? Eða jafnvel Bjarna Fel?“ Aðspurður kveðst Sóli stefna að því að senda frá sér fleiri lög í framtíðinni. Hann eigi nokkrar hugmyndir í kollinum sem þarf að vinna meira með. En hvernig fannst Gylfa lagið? „Honum fannst það mjög gott, sagði að það væri létt og skemmtilegt. Enda gæti hann hafa samið það. Ég var líka pottþétt undir áhrifum frá Gylfa þegar ég samdi lagið. Ómeðvitað var ég kominn í síða leðurfrakkann hans.“ hdm@frettabladid.is
Mest lesið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Steiney frumsýnir kærastann Lífið Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira