Ingó klárar fyrstu sólóplötu sína 13. ágúst 2011 11:00 Ingólfur er ekki lengur Ingó og Veðurguðirnir því hann hefur nú lagt lokahönd á sína fyrstu sólóplötu. fréttablaðið/vilhelm „
Ég bara var að klára þetta,“ segir Ingólfur Þórarinsson tónlistarmaður en hann hefur nú lagt lokahönd á sína fyrstu sólóplötu. Ingólfur, eða Ingó, hefur verið að vinna í plötunni síðastliðið hálft ár og nú eru ellefu lög tilbúin. „Ég hef verið að vinna í þessu milli verkefna og samið hér og þar,“ segir Ingó, sem segir lögin vera góða blöndu af gríni og alvöru. Hann semur sjálfur öll lögin og hefur svo notið aðstoðar Axels Árnasonar hjá Stúdíó Flex við að taka lögin upp. „Hann er frábær og við góðir saman,“ segir Ingó og bætir að hann hafi þegar fengið góð viðbrögð við lögunum. „Þetta er tónlist fyrir alla aldurshópa og vinir og kunningjar sem ég hef leyft að heyra verið hrifnir. Lagið „Hún á mann“ hefur helst verið vinsælt og ég á von á að það slái kannski í gegn,“ segir Ingó en lögin fara væntanlega í spilun í útvarpinu síðar í þessum mánuði. Ingó hefur hingað til verið betur þekktur sem hluti af sveitinni Veðurguðunum en líkar vel að vera einn síns liðs á sviðinu. „Það er gaman að prófa þetta. Að vera sinn eigin herra og vera sá eini sem getur tekið ákvarðanir. Þegar maður er í hljómsveit þurfa allir að hafa skoðanir og ráða.“ Ingó hefur verið iðinn við kolann í sumar og komið fram úti um allt land. „Ég hef spilað úti um allt í sumar. Bæði með Veðurguðunum og einn með gítarinn í einkasamkvæmum. Ég ætla svo að gera eitthvað í vetur til að fylgja plötunni eftir.“ - áp
Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Lífið Fleiri fréttir Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjá meira