Hrifust af Æði-bitum og íslenskum partíum 12. ágúst 2011 08:00 Hópurinn hittist á Prikinu áður en kvikmyndagerðarmennirnir héldu heim á leið. Frá vinstri eru Richard Peete framleiðandi, Rebekka, Yoohna leikstjóri, Arnar Sigurðsson, Nick tökumaður og Luke Rathborne sem lék aðalhlutverkið í myndbandinu.Fréttablaðið/Stefán „
Ég held að þetta eigi eftir að koma vel út,“ segir Rebekka Bryndís Björnsdóttir tónlistarkona. Rebekka og Arnar Sigurðsson tóku að sér framleiðslu á myndbandi fyrir bandaríska tónlistarmanninn Ernest Greene sem gefur út undir nafninu Washed Out. Tökum á myndbandinu lauk í vikunni og ætti afraksturinn að líta dagsins ljós á næstu vikum. Tónlist Washed Out flokkast sem „chillwave“ og fyrsta plata sveitarinnar, sem kom út í síðasta mánuði, hefur fengið góða dóma. Hún var til að mynda flokkuð sem „Best New Music“ á Pitchfork.com sem þykir ávísun á að tónlistarnirðir sperri eyrun. Leikstjóri myndbandsins er David Yoonha Park sem getið hefur sér gott orð í óháða tónlistargeiranum. „Hann og framleiðandinn komu viku fyrr til að kynna sér aðstæður. Við buðum þeim að koma með okkur á ball í Trékyllisvík og þeir voru svo ánægðir að þeir ákváðu að ferð þeirra yrði innblástur að myndbandinu,“ segir Rebekka. Meðal þess sem Bandaríkjamennirnir hrifust af voru Æði-bitar sem Rebekka segir að komi við sögu í myndbandinu. Þá hrifust þeir af partíum á heimili þeirra Steinþórs Helga, umboðsmanns Hjaltalín, og Atla Bollasonar, fyrrum liðsmanns Sprengjuhallarinnar. „Atli tók á móti þeim á nærbuxunum þegar þeir komu til landsins. Þeim fannst ógeðslega fyndið að ókunnugur maður kæmi til dyra á nærbuxunum og það varð að sjálfsögðu að vera í myndbandinu.“ Bandaríkjamennirnir tóku upp efni víðs vegar um landið, meðal annars á Mývatni og við Öskju. Upphaflega hugmyndin var að enda á partísenu á bar í Reykjavík en þess í stað var haldið alvöru íslenskt eftirpartí. „Þeim fannst þetta greinilega svona góð partí heima hjá Steinþóri.“ - hdm
Mest lesið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Sjá meira