Svar við bréfi Helgu á svið 12. ágúst 2011 16:00 Svar við bréfi Helgu seldist í um 8.000 eintökum fyrir síðustu jól. Ólafur Egilsson vinnur nú að leikgerðinni, en Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir verkinu sem fer á svið Borgarleikhússins í vetur. Þröstur Leó og Ilmur Kristjánsdóttir fara með hlutverk í sýningunni. „
Þetta verður ekki og er ekki búið að vera auðvelt verk, en það er heldur ekkert endilega þannig sem það á að vera," segir Ólafur Egilsson, sem vinnur nú að leikgerð eftir metsölubókinni Svar við bréfi Helgu, eftir Bergsvein Birgisson. Svar við bréfi Helgu fer á svið Borgarleikhússins í vetur. Bókin kom út fyrir síðustu jól og seldist í um 8.000 eintökum. Hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fyrra og valin besta skáldsaga ársins að mati bóksala. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir og á meðal leikara eru Þröstur Leó Gunnarsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir. Ólafur segir jákvætt að bókin sé lesendum í fersku minni þegar verkið fer á svið, en sá Ólafur bókina fyrir sér á sviði þegar hann las hana fyrst? „Já og nei. Sagan er falleg, en það eru miklar myndlýsingar sem flytjast ekki beinlínis yfir á sviðið sem slíkar. Ég hikaði alveg. Það er kannski ekkert óeðlilegt. Ég hika alltaf og efast. Maður er í stöðugum efa og þetta eru endalaus helvítis vandræði." Ólafur segir ekki sjálfgefið hvernig á að sviðsetja verkið, en bætir við að í leikhúsinu séu til ýmis góð meðul og tæki sem hægt er að grípa til. Svar við bréfi Helgu er á köflum erótísk, en Ólafur segir þó að ekkert kynlíf verði á sviðinu. „Kynlífið verður túlkað á listrænan hátt. Það er hægt að ýja að og gefa í skyn á hátt sem heldur áhuga án þess að fólki finnist gengið fram af því. Þá heitir það kannski ekki kynlíf, frekar erótík. Það er mikil náttúra í bókinni og henni verður að koma til skila." Ólafur þarf ekki aðeins að koma náttúrunni í Svari við bréfi Helgu til skila, heldur einnig ónáttúru. „Já. Hann er aðframkominn af ástleysi og hjartasárum. Leitar huggunar í sínum skepnum. En ekki bara með holdlegum hætti, heldur andlegum fyrst og fremst." atlifannar@frettabladid.isxxx
Mest lesið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira