Hegðar sér eins og fífl um allan heim 12. ágúst 2011 10:00 Justin Bieber var með læti í flugvél á dögunum. Ekki trúa öllu sem þið heyrið, segir Bieber.
Fréttir af látum í kanadíska hjartaknúsaranum Justin Bieber berast reglulega og virðast koma úr mörgum heimsálfum. Bieber blæs á kjaftasögurnar. „Hann var mjög erfiður í fluginu. Áhöfnin trúði ekki sínum eigin augum," segir heimildarmaður Fox-fréttastofunnar í Bandaríkjunum um söngvarann Justin Bieber. Bieber flaug á dögunum frá Los Angeles til Asíu og neitaði að hlýða skipunum áhafnarinnar þegar hann var beðinn um að setjast niður og spenna beltin í flugtaki. Flugstjórinn kynnti sig fyrir Bieber þegar líða tók á flugið og bað hann um eigindaráritun, en kanadíski söngvarinn hafnaði beiðninni með dónaskap. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fréttir berast af leiðindahegðun Justins Bieber. Fyrir þremur mánuðum tók hann að sér gestahlutverk í glæpaþáttunum CSI. Marg Helgenberger, leikkona í þáttunum, sagði í samtali við franska útvarpsstöð að Bieber hefði hagað sér eins og fífl allan tímann. Hann læsti framleiðanda inni í skáp og kýldi í gegnum köku sem var í boði fyrir starfsfólk. Nokkrum vikum síðar sagði ástralskur spjallþáttastjórnandi að Bieber hefði brjálast við tökur á þættinum og meðal annars öskrað á sviðsstjóra: „Ekki snerta mig aftur, andskotinn hafi það!" Bieber heldur ró sinni þrátt fyrir fréttaflutning af meintum hálfvitaskap. „Fólk ætti ekki að trúa öllu sem það heyrir," sagði Bieber í samtali við fréttamiðilinn TMZ í vikunni. „Ég á líka að vera dáinn í dag, sá orðrómur er á kreiki." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira