Leið eins og ég væri stödd í póstkorti 8. ágúst 2011 20:00 Lára Rúnarsdóttir söngkona er nýkomin heim eftir tveggja vikna tónleikaferðalag þar sem Sviss heillaði hana upp úr skónum. „
Þessi ferð fór fram úr öllum mínum björtustu vonum og var frábær í alla staði,“ segir Lára Rúnarsdóttir söngkona, sem er nýlent á Íslandi eftir tveggja vikna tónleikaferðlag um Evrópu. Tónleikaferðalagið var í raun einnig fjölskyldusumarfríið hjá Láru. Trommari hljómsveitarinnar, Arnar Gíslason, er eiginmaður Láru og því ekki hægt að skilja eftir þriggja ára dóttur þeirra hjóna, Emblu. Systir Láru, Margrét, var síðan tekin með til að passa. Mikil keyrsla var á sveitinni, sem spilaði á tíu tónleikum á tveimur vikum. „Það heyrðist minnst í Emblu af öllum í ferðinni. Hún er greinilega fædd fyrir flakkið og fannst þetta æðislegt,“ segir Lára, en sveitin leigði rútu og keyrðu svo á milli Þýskalands og Sviss, lands sem heillaði Láru upp úr skónum. „Í Sviss leið mér eins og ég væri stödd inni í póstkorti. Ég var heilluð af landslaginu og svo var alltaf hreint þarna. Íbúar landsins hljóta að slá grasið einu sinni á dag, þar var svo fullkomið,“ segir Lára, sem stefnir á að fara aftur til Sviss. „Við kynntumst yndislegu fólki sem var mjög hrifið og forvitið um Ísland. Ég gæti vel hugsað mér að fara þangað til að taka upp nýju plötuna mína,“ segir Lára, sem stefnir á að koma með nýja plötu í byrjun næsta árs. „Mig klæjar í puttana að fara að vinna í nýju efni eftir ferðina. Draumurinn væri að fara út fyrir landssteinana með hljómsveitin, loka okkur af á afskekktu sveitasetri og búa til nýju plötuna þar. Ég þarf bara að finna leið til að fjármagna ferðalagið en ég stefni á að byrja að vinna í plötunni í lok ágúst,“ segir Lára og viðurkennir að það geti verið erfitt að vera í skapandi starfi á Íslandi. „Eins frábært og það er að búa hérna er hraðinn sömuleiðis mikill og maður alltaf með fullt af verkefnum í gangi á sama tíma. Þess vegna væri fínt að komast út og loka sig af.“ alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira