Hefna sín á Charlie Sheen - verður jarðaður í næstu þáttaröð 4. ágúst 2011 13:00 Persóna Charlie í Two and a Half Men verður jörðuð í næstu þáttaröð. Nordicphotos/Getty
Piparsveinninn Charlie Harper verður jarðaður í næstu þáttaröð af Two and a Half Men. Framleiðandinn Chuck Lorre kemur þannig fram hefndum. Persóna Charlie Sheen í sjónvarpsþáttunum vinsælu Two and a Half Men verður ekki aðeins látin deyja í næstu þáttaröð heldur verður hún einnig jörðuð. Sheen varð hæstlaunaði sjónvarpsleikarinn í Hollywood fyrir hlutverk sitt í þáttunum. Eftir að hafa móðgað framleiðanda þáttanna og einn af höfundum þeirra, Chuck Lorre, í mars síðastliðnum og hagað sér almennt eins og fábjáni var Sheen rekinn og Ashton Kutcher ráðinn í hans stað. Nú virðist Lorre hafa komið fram hefndum sínum með því að jarða hinn kvensama piparsvein, Charlie Harper, í eitt skipti fyrir öll. Mikil leynd hvílir yfir söguþræðinum en samkvæmt heimildarmönnum fer jarðarförin fram í fyrstu tveimur þáttunum í nýju þáttaröðinni og hefjast tökur á næstu dögum. Samkvæmt síðunni Deadline Hollywood deyr Charlie og hús hans í Malibu verður sett á söluskrá í byrjun þáttaraðarinnar. Þá kemur persóna Kutchers, Raymond, til sögunnar sem mögulegur kaupandi. Kutcher hefur áður getið sér gott orð í sjónvarpi sem hrekkjalómur í Punk"d og sem Michael Kelson í gamanþáttunum That 70"s Show. Hann ætti því að kunna vel við sig í sjónvarpinu en hvort honum tekst að fylla skarðið sem Sheen skilur eftir sig á eftir að koma í ljós. Sheen hefur gert samning um að leika í nýrri sjónvarpsþáttaröð, Anger Management. Engin bandarísk sjónvarpsstöð hefur þó enn sem komið er fest kaup á henni.
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira