Sívaxandi draggkeppni 3. ágúst 2011 18:00 Georg Erlingsson Meritt hefur séð um að skipuleggja Draggkeppni Íslands síðan árið 1999 en keppnin fer fram í kvöld í Hörpu. Mynd/GVA
Mikil spenna er fyrir Draggkeppni Íslands 2011 sem fer fram í Hörpu í kvöld. Georg Erlingsson Merritt sér um að skipuleggja keppnina sem hefur stækkað til muna á síðustu árum. „Við erum mjög spennt fyrir að halda keppnina í fyrsta sinn í Hörpu,“ segir Georg Erlingsson Merritt, skipuleggjandi Draggkeppni Íslands 2011. Keppnin verður haldin í Silfurbergssalnum í Hörpu í kvöld og verður húsið opnað klukkan 20. Miðasalan fer vel af stað en milli 550 og 600 miðar eru í boði. „Undanfarin ár höfum við alltaf selt upp á keppnina og vona ég að engin breyting verði á því í ár. þó að sætum fjölgi um 100,“ segir Georg en hann hefur séð um að skipuleggja keppnina síðan árið 1999. Sjálfur vann hann Draggkeppni Íslands árið 1998 og finnur mikinn mun frá því hann byrjaði að vera með puttana í keppninni. „Ég man að fyrstu árin var keppnin haldin á litlum skemmtistöðum. Það var ekki fyrr en árið 2007 sem við fórum að færa okkur í leikhúsin og höfum síðustu þrjú ár verið í Íslensku óperunni. Það var því ekkert eðlilegra en að fylgja þeim inn í Hörpuna enda frábært fólk að vinna með.“ Hægt er að nálgast miða á harpa.is og í afgreiðslu tónlistarhússins en sérstakt afsláttarverð er fyrir þá sem eru með VIP passa á Gay Pride og meðlimi í Samtökunum 78. Georg hlakkar til kvöldsins og helgarinnar en hann verður í fyrsta sinn með pallbíl í Gay Pride göngunni. „Draggkeppnin verður í fyrsta sinn með eigin bíl og við erum með svakalega flott atriði. Vanalega hef ég farið gönguna fótgangandi en það verður gaman að prófa þetta.“ alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira