Láta drauminn rætast og opna förðunarskóla 29. júlí 2011 12:15 Þær Eygló Ólöf Birgisdóttir, Díana Björk Eyþórsdóttir og Magnea Elínardóttir eru að opna nýjan förðunarskóla sem nefnist Mood. Fréttablaðið/anton „
Þetta hefur verið draumur hjá mér frá því ég byrjaði að læra förðun“ segir Eygló Ólöf Birgisdóttir sem nýverið opnaði förðunarskólann Mood Make Up School ásamt Magneu Elínardóttur og Díönu Björk Eyþórsdóttur. „Þegar ég sagði Magneu frá þessum draumi mínum kom í ljós að hún gekk með sama draum í maganum. Við ákváðum að sameina krafta okkar og höfum verið að undirbúa opnun undanfarið ár.“ Eygló hefur unnið í faginu frá því að hún útskrifaðist árið 2006, meðal annars við kennslu, sem verslunarstjóri hjá MAC og er sminka hjá Ríkissjónvarpinu. Einnig hefur hún gert fjöldann allan af auglýsingum og tískuþáttum. Magnea hefur svipaða ferilskrá en þær tvær sjá um alla kennslu í skólanum. Díana Björk sér svo um allan rekstur en hún er menntaður förðunar- og viðskiptafræðingur. Frá því að stöllurnar opnuðu vefsíðu skólans moodschool.is fyrir stuttu hefur áhuginn verið mikill og þó nokkrir búnir að skrá sig á námskeið í haust. Kennt verður á snyrtivörur frá MAC og fá nemendur vörupakka þaðan. „Við ætlum að einbeita okkur að þvi að kenna nemendum okkar að vinna við fagið og leggjum áherslu og tísku, ljósmyndir og sjónvarp,“ segir Eygló en einnig verðu kennt á airbrush og förðun fyrir háskerpulinsu. „Við Magnea erum á kafi í þessu og vinnum við förðun á hverjum degi. Þess vegna finnst okkur gaman að geta miðlað einhverju áfram til nemenda. Við höfum allar mikinn metnað og ástríðu fyrir faginu sem á eftir að endurspeglast í skólanum og kennslunni,“ segir Eygló en fyrsta námskeiðið hefst í byrjun september og eru bæði kvöld- og morgunnámskeið í boði. - áp
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Fleiri fréttir Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Sjá meira