Teiknaði útför Amy Winehouse fyrir tveimur árum 28. júlí 2011 18:00 Hugleikur Dagsson virðist hafa spádómsgáfu hvað varðar skopmyndir sínar, en hann teiknaði þessa mynd af útför Amy Winehouse fyrir tveimur árum. Hann segist þó ekki vera skyggn heldur trúi hann á tilviljanir. „
Það stefndi í þetta,“, segir skopmyndateiknarinn Hugleikur Dagsson, en fyrir tveimur árum teiknaði hann mynd eftir texta lagsins Rehab, sem söngkonan Amy Winehouse gerði frægt, en hún lést á laugardag. „Það vill svo til að ég geri eitthvað sem verður síðan að veruleika,“ segir Hugleikur, sem telur sig vinnusaman og að það sé ástæða þess að hann hitti stundum á hluti sem rætist. Ertu þá ekki skyggn? „Ég er ekki skyggn frekar en Sigríður Klingenberg,“ segir hann. Á myndinni má sjá opna gröf og í íslenskri þýðingu stendur: „Þeir reyndu að fá mig í meðferð en ég sagði nei, nei, nei,“. Amy Winehouse barðist sem kunnugt er við eiturlyfjafíkn síðustu ár og skipti engu hversu oft hún leitaði hjálpar meðferðarstofnana, alltaf snéri hún aftur til fyrra lífernis sem endaði svo á hræðilegan hátt á laugardag. Þetta er ekki í eina skiptið sem Hugleikur reynist sannspár. Í bókinni „Garðarshólmi“ eftir Hugleik má finna teikningu af rauðu skýi sem dreifðist yfir Evrópu, en skýið átti að tákna göldrótt Eurovision lag frá Íslandi. Hugleikur segir að um leið og Eyjafjallajökull hóf að gjósa, hafi fólk hins vegar bent á að skýið ætti margt líkt með öskuskýi eldgossins. „Einhverntímann skrifaði ég líka leikrit þar sem ein persónan þótti sláandi lík Guðmundi í Byrginu. Við fögnuðum eiginlega hálfpartinn þegar þessi perri kom upp á yfirborðið, því þá varð leikritið allt í einu meira viðeigandi,“ segir Hugleikur og bætir við að hann hafi einnig spáð fyrir ísbjarnardrápunum. Þrátt fyrir þetta segist Hugleikur þó trúa á tilviljanir. En hefur Hugleikur í hyggju á að setja þessar „tilviljanir“ sínar saman í spádómsrit? „Það gæti vel verið að ég gerði það einhverntímann þegar mér leiðist,“ segir Hugleikur. kristjana@frettabladid.is
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist Fleiri fréttir Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Sjá meira