Nilli gengur til liðs við Týndu kynslóðina 25. júlí 2011 15:00 Björn Bragi, Þórunn Antonía og Nilli munu leiða saman hesta sína í nýjum skemmtiþætti. „
Okkur finnst mjög skemmtilegt að fá Nilla til liðs við okkur," segir Björn Bragi Arnarsson, annar af stjórnendum sjónvarpsþáttarins Týnda kynslóðin, sem hefur göngu sína á Stöð 2 í ágúst. Hinn skeleggi Níels Thibaud Girerd, best þekktur sem Nilli, hefur gengið til liðs við Björn Braga og Þórunni Antoníu og verður þeim til aðstoðar í nýju þáttunum. Nilli byrjaði með vefþætti fyrir vikuritið Monitor á Mbl.is í fyrra í kjölfar viðtals við hann og tónlistarmanninn Berndsen á Iceland Airwaves. „Hann verður eins konar hjálparkokkur og fer í sérverkefni," segir Björn og bætir við að hann líti á Nilla sem son. Það kemur ekki á óvart þar sem Björn Bragi var ritstjóri Monitors og átti hugmyndina að þáttum Nilla í samstarfi við vikuritið. Nafn þáttanna, Týnda kynslóðin, er vísun í frægt lag Bjartmars Guðlaugssonar, en það býr meira að baki að sögn Björns. „Mér finnst þetta skemmtilegt nafn," segir hann. „Þátturinn á að höfða til allra kynslóða og ég held að allar kynslóðir líti á sig sem týndu kynslóðina. Ekki bara ungt fólk í dag. Þetta er svolítið opið og létt nafn sem mér fannst viðeigandi fyrir það sem við ætlum að gera." Týnda kynslóðin verður, að sögn Björns Braga, skemmtiþáttur sem á að höfða til breiðs hóps. „Við verðum í opinni dagskrá á föstudagskvöldum og við viljum ná sem flestum að skjánum," segir hann. „Þetta verður blanda af spjallþætti og innslögum þar sem gestirnir taka virkan þátt í dagskrárgerðinni."- afb
Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Lífið Fleiri fréttir Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Sjá meira