Kennir Qi Gong á útihátíð 22. júlí 2011 14:00 Læra að draga andann rétt Gunnar Eyjólfsson leikari ætlar að kenna gestum útihátíðarinnar Sjálfstætt fólk hugmyndafræði og æfingar Qi Gong. „
Þetta er ekki leikfimi heldur lífsmáti og snýst um að læra að gera það sem við getum ekki verið án, að anda,“ segir Gunnar Eyjólfsson um æfingar og hugmyndafræði Qi Gong. Gunnar verður á útihátíðinni Sjálfstætt fólk að Hvölum í Hvalfirði um verslunarmannahelgina til að kenna og kynna æfingarnar. Sjálfstætt fólk er útihátíð á vegum SÁÁ samtakana og er edrú fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina. Markmiðið er að stuðla að heilbrigðu líferni og eru ýmsar uppákomur skipulagðar með alla aldurshópa í huga. Gunnar hefur verið að kenna Qi Gong undanfarin ár og iðkar það í Grasagarðinum í Laugardal snemma á morgnana. Aðspurður hvort hann haldi að æfingarnar passi á íslenska útihátíð svara Gunnar „Þetta er nú ekki þessi hefðbundna íslenska fylleríshátíð enda engin vímuefni leyfð. Ég er orðin vanur því að kenna fólki Qi Gong og tek því fagnandi að fólk vilji læra æfingarnar enda passa þær fyrir alla. Ef ég er heppinn næ ég að heilla nokkra til að aðhyllast þennan lífsmáta,“ segir Gunnar, sem sjálfur hefur stundað æfingarnar á Íslandi síðan árið 1972. Auk Gunnars og Qi Gong verða Brahma Kumris og Kundalini hugleiðslur í boði fyrir gesti, svetttjald, sjósund, fimmrithmadans, miðnæturganga og fjöruganga ásamt mörgu fleiru. Einnig er sérstök krakkadagskrá þar sem meðal annars er að finna íþróttamót, Cross-fit og listasmiðju. Jónas Sig, hljómsveitin Valdimar og Of Monsters and Men eru meðal tónlistaratriða en hátíðin hefst föstudaginn 29. júlí. -áp
Mest lesið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið „Ég er skíthræddur“ Tónlist Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Fleiri fréttir Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Sjá meira