Engin prestsstaða auglýst í rúmt ár 19. júlí 2011 07:00 Guðbjörg Jóhannesdóttir, formaður Prestafélags Íslands.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir Tuttugu til þrjátíu guðfræðingar með embættispróf hafa áhuga á að gerast prestar en sjá ekki fram á að fá embætti. Þetta segir Guðbjörg Jóhannesdóttir, formaður Prestafélags Íslands. „Það eru engar nýráðningar vegna þess að störfunum er ekki fjölgað og fáir þora að færa sig til. Eins og staðan er nú sér maður fram á að það losni kannski fimm embætti eftir fimm ár.“ Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnisstjóri á þjónustusviði á Biskupsstofu, segir enga stöðu hafa verið auglýsta hjá Þjóðkirkjunni síðan í febrúar 2010. Á sama tíma hefur verið niðurskurður hjá kirkjunni. „Í kjölfar hrunsins hafa sjö prestsstöður verið lagðar niður á undanförnum tveimur árum, þar af þrjár erlendis.“ Að sögn Steinunnar Arnþrúðar voru tveir guðfræðingar vígðir til prestsþjónustu í Þjóðkirkjunni árið 2009 og einn árið 2010. Fjórir hafa verið vígðir það sem af er þessu ári, þar af voru þrír vígðir til embættis í Noregi. „Mér er kunnugt um að sex prestar séu núna ráðnir í störf í Noregi. Að auki starfar einn hjá biskupakirkjunni á Írlandi og einn er á förum til starfa í kirkju í Strassborg í Frakklandi,“ greinir hún frá. Starfsmannastjóri Niðaróssbiskupsdæmis kynnti í Íslandsferð sinni síðastliðið haust starfsaðstæður í Noregi en þar er skortur á prestum. Guðbjörg segir presta á Íslandi sjá fram á enn frekari fækkun embætta. „Við teljum því miður að þetta sé bara að byrja. Hallinn er það mikill. Úrsagnir úr Þjóðkirkjunni hafa líka áhrif. Það er hins vegar ánægjulegt að finna að íslenskir prestar skuli vera eftirsóttir starfskraftar í Noregi þótt ég eigi ekki von á einhverri bylgju presta héðan. En það má kannski segja að 10 manns séu bylgja í stétt sem telur um 160 manns.“ Erfitt fór að verða fyrir guðfræðinga með embættispróf að fá brauð á seinni hluta tíunda áratugar síðustu aldar, að því er Guðbjörg greinir frá. „Það var byrjað að þrengjast þegar ég útskrifaðist 1996. Fyrir 25 árum var fólk hins vegar iðulega búið að fá starf áður en það útskrifaðist.“ Guðbjörg bendir á að Norðmenn bjóði gríðarlega góð starfskjör auk þess sem umsóknarferlið sé miklu einfaldara en hér á landi. „Það er þess vegna ekki undarlegt að Noregur heilli.“ ibs@frettabladid.is
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira