Heyrúlla fór í gegnum fjósvegg 12. júlí 2011 05:00 Kýrnar á Kvíabóli fengu að gæða sér á innihaldinu þegar rúllan var búin að raska ró þeirra í fjósinu. mynd/haukur marteinsson
Marteinn Sigurðsson Það getur verið vandasamt að heyja í brekkunni fyrir ofan bæinn Kvíaból í Köldukinn en í síðustu viku rúllaði 800 kílóa heyrúlla niður túnið og braut sér leið inn í fjós. „Það voru nokkrar kýr inni og ég er viss um að einhver þeirra hefur orðið fyrir henni þó ekki sjái á neinni,“ segir Marteinn Sigurðsson, bóndi á Kvíabóli. Hann segir að rúllan hafi oltið úr bindivélinni. Þá getur fátt stöðvað hana en í brekkunni er í um 18 til 23 gráðu halli. Hún lenti með slíku afli á fjósinu að hún fór í gegnum vegginn, sem gerður er úr einangrunarklæðningu, og reif upp veggstoð sem skrúfuð var niður í gólfið. Hafi hún lent á kú hefur þó stoðin verið búin að taka mesta höggið. „Þetta var slíkur kraftur í þessu að konan mín sem var heima hélt að það hefði orðið sprenging,“ segir Marteinn en íbúðarhúsið er fyrir neðan fjósið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Marteinn horfir á eftir heyrúllu niður brekkuna. Eitt sinn endaði rúlla á steyptum hlöðuvegg og sprakk þar. Marteinn getur þó andað léttar núna því búið er að heyja í hallanum mikla. Kýrnar fengu væna sárabót fyrir öll óþægindin sem þær urðu fyrir en þar sem rúllan var orðin götótt var ekkert annað að gera, segir Marteinn, en að opna hana og leyfa kúnum að gæða sér á innihaldinu.- jse
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira