Leikkonur loðnar um lófana 7. júlí 2011 18:00 Sarah Jessica og Angelina fengu báðar þrjá og hálfan milljarð í laun á einu ári samkvæmt útreikningum Forbes-tímaritsins.
Leikkonurnar Angelina Jolie og Sarah Jessica Parker eru launahæstu leikkonurnar í Hollywood samkvæmt útreikningum Forbes-tímaritsins. Jolie hefur átt ágætu gengi að fagna á hvíta tjaldinu en kvikmyndirnar Salt og The Tourist nutu báðar mikillar hylli í miðasölu. Forbes heldur því fram að Jolie hafi þénað 30 milljónir dollara eða tæplega þrjá og hálfan milljarð íslenskra króna frá því í maí á síðasta ári til maí á þessu ári. Sara Jessica Parker var með svipað í laun en hún græðir mest á því að þættirnir um Carrie og vinkonur hennar í Beðmálum í borginni eru sýndir aftur og aftur og aftur í sjónvarpi út um allan heim. Þá komu ófáar krónur í kassann fyrir mynd númer tvö í Sex and the City-flokknum og leikkonan fékk dágóða summu fyrir samstarf sitt við tískuhúsið Halston. Í þriðja til fjórða sæti eru síðan Jennifer Aniston og Reese Witherspoon. Þær tvær voru með 28 milljónir dollara í laun á umræddu tímabili eða rúma þrjá milljarða. Í fimmta sætinu er loks Julia Roberts með 20 milljónir dollara í laun eða rúma tvo milljarða en hún var lengi vel með hæsta launatékkann í Hollywood. -fgg
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta Sjá meira