Feitu fyndnu karlarnir 7. júlí 2011 19:00 Kevin James.
Það er alltaf pláss fyrir þéttvaxna ameríska brandarakarla á hvíta tjaldinu, kannski af því að Bandaríkjamenn eru meðal feitustu þjóða heims. Og húmorinn er fremur einfaldur; hann gengur út á át, búkhljóð og líkamsbygginguna. Kevin James er nýjasta viðbótin í hóp feitra stuðkarla. Kvikmynd hans, Zookeeper, verður frumsýnd um helgina en hún segir frá dýragarðsverðinum Griffin Keyes sem segir starfi sínu lausu til að ganga í augun á draumastúlkunni. Dýrin í dýragarðinum eru ákaflega óánægð með þessa ákvörðun Keyes, enda þykir hann nokkuð fær í sínu starfi, og ákveða í sameiningu að uppljóstra leyndarmáli sínu; þau geta talað. Feiti, fyndni karlinn hefur verið til í kvikmyndasögunni frá dögum þöglu myndanna. Laurel og Hardy voru skarpar andstæður; Stan Laurel grannur og veiklulegur en Oliver Hardy þéttvaxinn, sterkur og yfirleitt gírugur til annað hvort matar eða peninga. Hiklaust er hægt að setja John Belushi í þennan flokk, hann notaði holdafar sitt til gamanleiks á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Belushi stundaði það meðan á tökum á SNL-þáttunum stóð að mæta óboðinn heim til fólks í nágrenni við tökustaðinn og éta úr ísskáp þess. Hann fannst síðan iðulega sofandi í ókunnugum húsum. Belushi nýtti sér þessa hegðun sína í „skets" fyrir SNL en hann lést aðeins 33 ára aldri eftir að hafa tekið of stóran skammt af „speedball", lífshættulegri blöndu af kókaíni og heróíni. John Candy barðist alla tíð við aukakílóin, var 150 kíló og gerði sjálfum sér engan greiða með því að reykja heilan pakka af sígarettum á dag. Hann lést úr hjartaáfalli aðeins 54 ára að aldri. Candy náði engu að síður miklum frama í kvikmyndaleik; lék í mörgum af fyndnustu kvikmyndum níunda áratugarins, þar á meðal hinum ógleymanlegu Planes, Trains & Automobiles, Uncle Buck, Who's Harry Crumb og Spaceballs. Chris Farley kom í kjölfarið á Candy og flestir virtust sammála um að hann ætti framtíðina fyrir sér í gamanleik. Kvikmyndir á borð við Black Sheep, Beverly Hills Ninja og Almost Heroes skutu leikaranum upp á stjörnuhimininn og þótt gagnrýnendur væru ekki hrifnir elskaði Ameríkaninn Farley. Hann þjáðist hins vegar af mikilli minnimáttarkennd vegna þyngdarinnar og tjáði vinum sínum að hann vildi ekki vera feiti náunginn sem alltaf væri að detta. Farley lést af of stórum skammti af eiturlyfjum, aðeins 33 ára að aldri. Jonah Hill er á hraðri uppleið eftir kvikmyndirnar Superbad og Forgetting Sarah Marshall en þar hefur mikið verið leikið sér með þyngdina á leikaranum. Kevin James tókst hins vegar að taka sitt líf í gegn; hann fór í strangt aðhald eftir að hann varð yfir 150 kíló og lét hafa eftir sér í spjallþætti David Letterman: „Ofþyngd er handan við hornið á næsta veitingastað." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta Sjá meira