Nýtt lag á leiðinni frá Þorvaldi Davíð 7. júlí 2011 12:00 Þorvaldur Davíð skellti sér í stúdíó og tók upp lag áður en hann hélt á vit ævintýranna í Los Angeles. Hér er hann á tökustað á kvikmyndinni Svartur á leik.
Textasmiðurinn Sólmundur Hólm skrifaði textann við nýja lagið. Fyrir tveimur árum gáfu félagarnir út lagið Sumarsaga. Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari hefur tekið upp nýtt lag sem verður gefið út með haustinu. Þorvaldur er sjálfur farinn til Los Angeles en félagi hans Sólmundur Hólm, skemmtikraftur og rithöfundur, aðstoðaði Þorvald við textasmíð í laginu, sem ekki hefur fengið neitt nafn. „Þorvaldur var búinn að semja þetta lag og vildi gera eitthvað meira úr því. Þess vegna ákvað hann að taka það upp áður en hann færi út," segir Sólmundur, sem eyddi öllum miðvikudeginum í stúdíó Geimsteini í Keflavík ásamt Þorvaldi. „Við brunuðum til Keflavíkur daginn áður en hann fór út og tókum upp hljóðfæraleik en svo ætlar hann að syngja það inn úti," segir Sóli en Björgvin Ívar Baldursson úr hljómsveitinni Lifun stjórnaði upptökum. Sólmundur og Þorvaldur eru æskuvinir og er þetta ekki í fyrsta sinn sem félagarnir stilla saman strengi sína en þeir sendu frá sér smellinn Sumarsaga fyrir tveimur árum. „Þetta lag er ekkert „júhúbúmmbarambei" heldur svífur meiri angurværð yfir vötnum í þetta sinn." Eins og kunnugt er hefur Þorvaldur Davíð verið staddur hér á landi í nokkra mánuði við tökur á íslensku myndinni Svartur á leik en hann útskrifaðist frá hinum virta leiklistarskóla Juilliard í vor. Þessa dagana er hann að flytja frá New York til Los Angeles ásamt unnustu sinni, Hrafntinnu Karlsdóttur, en Þorvaldur landaði samningi við virta umboðsskrifstofu í mekka kvikmyndaiðnaðarins og ætlar að láta reyna á stóra drauminn. Spilamennskan er því í aukahlutverki hjá Þorvaldi en greinilegt að fleira togar í hann en leiklistin. - áp
Mest lesið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Lífið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Fleiri fréttir Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Sjá meira