Skilur vel kröfur Vestfirðinga 7. júlí 2011 07:45 Ráðherrann kvartaði ekki yfir útsýninu á Dynjandisheiði en vegirnir þar eru ekki jafn indælir þótt nýheflaðir séu. Þessi mynd er tekin af veginum þar.
Ögmundur Jónasson „Ég skil mjög vel þá kröfu sem Vestfirðingar setja fram um Dýrafjarðargöng og vegabætur á Dynjandisheiði, að ógleymdum vegabótum á Suðurströndunum,“ sagði Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra og ráðherra vegamála. Hann var einmitt á ferðinni yfir Dynjandisheiði þegar Fréttablaðið sló á þráðinn. Hann sagði að ekki mætti þó gleyma þeim úrbótum sem gerðar hefðu verið á Vestfjörðum undanfarin ár. „Við fórum í gær frá Hólmavík, yfir Steingrímsfjarðarheiði og síðan allt Djúpið til Ísafjarðar og þar er vegur mjög góður enda slitlag alls staðar. Öðru máli gegnir um leiðina frá Ísafirði og suður fyrir í Dýrafjörð og Arnarfjörð,“ segir hann. Hann segir að þótt Vestfirðingar hafi sterkar skoðanir á vegakerfinu sé gott að ræða við þá um þessi mál þar sem þeir séu lausnamiðaðir. „Annars fannst mér heimamenn hafa mestar áhyggjur af því að vegurinn yfir Dynjandisheiði væri með besta móti núna þegar við eigum leið um hann með rannsóknargleraugun á nefinu,“ sagði ráðherrann og játti því svo að augljóslega væri nýbúið að hefla veginn. Við svo kveðið slitnaði GSM-sambandið, sem er býsna skrykkjótt uppi á Dynjandisheiði. - jse
Mest lesið Segir af sér þingmennsku vegna tilraunar til vændiskaupa Innlent „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Innlent „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Innlent „Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Erlent Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Innlent Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Erlent Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Innlent Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn Innlent „Vonbrigði“ Innlent Kolbeinn Tumi tekur við af Erlu Björgu Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Afsögn þingmanns, hótanir Trumps og í beinni frá Svíþjóð Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Taldi ekki sérstaka nauðsyn á að hneppa Helga Bjart í varðhald Barbara sakar Sigríði um einelti og Valtý um gagnaleka „Vonbrigði“ Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Mjög óalgengt að þingmenn segi af sér Mikilvægt að vanda sig og beita varúð Telur Pétur hafa svarað ágætlega fyrir lóðaviðskipti Sjaldgæf afsögn þingmanns og leikskóla lokað að óbreyttu Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Einn af hverjum fjórum stjórnendum notar gervigreind daglega Telur viðbrögð Guðbrands rétt og skynsamleg Bærinn fær 70 milljónir fyrir gamla Landbankahúsið sem fær nýtt hlutverk Kolbeinn Tumi tekur við af Erlu Björgu Þingið kallar áfram eftir hugmyndum frá almenningi Manneklan mest hjá skólum og frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð Yfir 350 milljónir í kostnað vegna starfslokasamninga hjá ríkisstofnunum Segir af sér þingmennsku vegna tilraunar til vændiskaupa Andstæðan við lóðabrask Taki ásökunum alvarlega og skipi Signýju til bráðabirgða Safna undirskriftum og segja Þorgerði að taka Long opnum örmum Sjá meira