Bannað eiturefni í flugeldum 5. júlí 2011 05:30 HCB er notað til að skýra liti í flugeldum. Notkun efnisins hefur verið á undanhaldi, segir innflytjandi. Mynd/Pjetur
Efnagreiningar Umhverfisstofnunar sýna að flugeldar sem seldir eru hér á landi innihalda þrávirka eiturefnið hexaklórbensen (HCB). Efnið hefur verið bannað um langt skeið vegna alvarlegra áhrifa þess á umhverfið og heilsu manna. Við mælingar á efnainnihaldi flugelda á vegum yfirvalda í Danmörku á síðastliðnu ári kom í ljós að hluti þeirra innihélt HCB. Í framhaldi af þessum fregnum ákvað Umhverfisstofnun að mæla efnið í andrúmslofti í Reykjavík yfir síðustu áramót. HCB mældist umtalsvert yfir því bakgrunnsgildi sem miðað er við, en þó er talið að magnið hafi ekki haft teljandi áhrif á heilsu fólks. Umhverfisstofnun hefur ákveðið, í samvinnu við nokkrar heilbrigðisnefndir sveitarfélaga, að standa fyrir sýnatökum og mælingum á innihaldi flugelda sem fluttir verða til landsins á næstu mánuðum fram að áramótum. Það er á ábyrgð innflytjenda að tryggja að flugeldar innihaldi ekki efni sem eru bönnuð, og mikilvægt að mati Umhverfisstofnunar að þeir flytji aðeins inn löglega flugelda og fái staðfestingu frá framleiðanda um að flugeldarnir innihaldi ekki HCB, sé þess nokkur kostur. Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, en björgunarsveitirnar eru langstærsti innflytjandi flugelda hér á landi, segir alla flugelda sem Landsbjörg flytur inn sérmerkta eftir stöðlum sem notaðir eru í Evrópu. Flugeldarnir komi að langmestum hluta frá þekktum framleiðanda í Kína sem sé kunnugt um reglur um óæskileg efni eins og HCB. Kristinn segir að flugeldabirgðir fyrir næstu áramót hafi verið keyptar í janúar. Hann segir að björgunarsveitirnar séu í „mjög vondum málum“ ef endurskoða þurfi þau kaup. „Ég vona að yfirvöld sýni þessu skilning. Við töldum að þetta væri ekki í þeirri vöru sem við flytjum inn, en við tökum þetta mjög alvarlega.“ Umhverfisstofnun mun kanna hvort slík efni sé að finna í flugeldum hérlendis og einnig koma upplýsingum til birgja um hvernig megi ganga úr skugga um að hættuleg efni sé ekki að finna í flugeldum. Stofnunin hefur gefið út að komi í ljós að flugeldar innihaldi HCB munu eftirlitsaðilar sjá til þess að þeir flugeldar fari ekki í sölu. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira