Framtíð útgerðar á Flateyri að skýrast 5. júlí 2011 05:15 Ef áform þrotabússtjóra Eyrarodda ganga eftir verður þess ekki langt að bíða að líf færist í útgerð að nýju á Flateyri. mynd/róbert
Friðbjörn Garðarsson Friðbjörn Garðarsson, þrotabússtjóri Eyrarodda á Flateyri, sem varð gjaldþrota þann 17. janúar síðastliðinn, segist bjartsýnn á að það takist að ganga frá sölu eigna fyrirtækisins innan fimmtán daga. Útgerð á Flateyri hefur verið lömuð að miklu leyti vegna deilna í kringum söluna en um fjörutíu manns misstu atvinnu sína þegar Eyraroddi varð gjaldþrota. Deilan stendur milli Lotnu og fyrirtækisins Toppfisks en Lotnumenn telja sig hafa fengið bindandi vilyrði frá Byggðastofnun um kaup á eignunum eftir að þeir gerðu tilboð í fyrsta útboðið sem haldið hefur verið. Byggðastofnun dró vilyrðið til baka og var haldið annað uppboð og eftir það hófust samningaviðræður við Toppfisk. „Ég hef sagt öllum þeim sem að málum koma að ég sé að fara í sumarfrí 20. júlí og ég hef einsett mér að málið verði frágengið þá. Ég er bjartsýnn á að það takist,“ segir Friðbjörn. Eiríkur Finnur Greipsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, segir það hryggilegt hversu lengi hafi dregist að finna lausn á þessu máli. „Við verðum bara að trúa því að þeir sem véla um okkar mál séu tilbúnir til að klára þetta,“ segir hann. „Það er alveg hræðilegt að hugsa til þess hvernig menn halda heilu samfélagi í slíkri óvissu svo lengi, það er bara óviðunandi. Þeir eru með fjöregg þorpsins í heljargreipum, segir Eiríkur Finnur, sem býr á Flateyri. Hann segist hafa orðið var við það að margir séu farnir að leita að vinnu fjarri heimabyggð. Friðbjörn segir að þetta ferli hafi alls ekki tekið langan tíma. „Þrotabússkipti á eignalausu búi taka yfirleitt fjóra til fimm mánuði svo þessu væri ekki lokið, jafnvel þótt allt hefði gengið eins og í sögu. En svo er það rétt að það skapaðist flækja sem tefur málið.“ Hann segist hafa skilning á því að Flateyringar séu orðnir langeygir eftir því að málið leysist. „Það var nú einmitt þess vegna sem ég leyfði fyrirtækinu Lotnu að fara vestur og hefja starfsemi áður en samningar hafa orðið gildandi.“ Um tuttugu manns starfa nú hjá Lotnu á Flateyri. jse@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira