Gamall bíll tengdur við leka gasleiðslu 5. júlí 2011 07:45 Þessi bíll kom að góðum notum á Urðunarstöðinni á Álfsnesi þó ekki hafi hann farið fetið. Mynd/Valli
Guðmar Guðmundsson Á urðunarstöðinni á Álfsnesi má finna gamlan bílgarm sem líklegast getur státað af lengsta púströri í heimi. Þannig vill til að púströr bílsins hefur verið lengt og síðan tengt í gaslögn eina sem er um kílómetri að lengd. Þetta var þó ekki til gamans gert heldur var þetta neyðarúrræði í síðasta mánuði þegar í ljós kom að súrefni komst inn í gaslögn og þar sem hún er neðanjarðar leit úr fyrir að það yrði bæði tímafrekt og kostnaðarsamt að komast að lekanum. Virtist ekkert annað í stöðunni en að grafa yrði lögnina upp með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn. Eins hefði verið hægt að panta rándýrt efni, að sögn Guðmars Guðmundssonar stöðvarstjóra, sem hefði síðan komið þeim á sporið þannig að þeir gætu gengið að lekanum. En þótt bruðl landans komi sér ágætlega fyrir starfsliðið á Álfsnesi vill það sjálft síst af öllu temja sér slíkt háttalag. Því varð úr að Sorpumenn fengu bíldruslu á svæðið og tengdu púströrið í leiðsluna. „Síðan bjuggum við svo um að hægt var að hella úrgangsolíu ofan í pústið. Þá var bara að þenja vélina og hella síðan úrgangsolíunni ofan í púströrið og hleypa þessu svo í leiðsluna. Þá leið ekki á löngu uns reykur stóð upp úr jörðinni og kom hann náttúrulega úr leiðslunni þar sem bilunin var.“ Bifreiðin er af gerðinni Mazda MS6 árgerð 1991. Guðmar Guðmundsson stöðvarstjóri segir að starfsmenn í Álfsnesi hafi fundið hann í blaðaauglýsingu. „Þetta þótti mikill sportbíll á sínum tíma,“ segir Guðmar. „Hann er örugglega hundfúll yfir örlögum sínum, hann var framleiddur til að pikka upp stúlkur á rúntinum en ekki til að standa hérna á Álfsnesi með pústið út í loftið,“ segir hann og hlær við. jse@frettabladid.is
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum Sjá meira