Tónleikahaldarar snúa bökum saman og stofna BÍT 2. júlí 2011 14:15 Grímur Atlason.
Bandalag íslenskra tónleikahaldara, BÍT, hefur verið stofnað hér á landi. Markmiðið með samtökunum er að styrkja bakland tónleikahaldara og verja hagsmuni þeirra. „Þetta eru ákveðnir aðilar sem hafa haldið tónleika á Íslandi um árabil. Þetta eru náttúrulega samkeppnisaðilar en á móti eru ákveðnir hlutir sem er gott að standa saman um," segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves, sem er í stjórn BÍT. „Þegar þú ert alltaf sóló einhvers staðar úti á túni er þetta mjög erfitt," segir hann og bætir við að svona samtök þekkist víða erlendis, meðal annars í Bretlandi. Formaður er Ísleifur B. Þórhallsson og aðrir sem sátu stofnfundinn voru Einar Bárðarson, Þorsteinn Stephensen, Páll Eyjólfsson, Steinþór Helgi Arnsteinsson og Helgi Björnsson. Jakob Frímann Magnússon, formaður FTT, er oddamaður. „Hann bauð mönnum skrifstofu til að halda fundinn og kallaði menn saman, sem var sniðugt. Mér fannst þetta fyrst kannski óraunhæft en svo fannst mér mjög gott að fólk talaði saman," segir Grímur. „Þetta er eins og Félag hljómplötuútgefenda. Þeir hittast og tala saman. Þeir eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta en þeir eru að keppa grimmilega í plötubúðunum." Áður hefur verið reynt að sameina tónleikahaldara í eina sæng en án árangurs og núna virðast menn tilbúnir til að sameina krafta sína, kannski vegna kreppunnar og hennar fylgifiska. Grímur nefnir að tónleikahald sé ekki jafn ríkisstyrkt og aðrir geirar tónlistar og því hafi verið mjög áhættusamt fyrir menn að halda tónleika. Oftast hafi þeir gert það hver í sínu horni. „Þeir sem eru reyndir eru farnir að átta sig á hvernig þetta virkar. Allir þessir aðilar hafa tapað peningum. Allir hafa haldið góða tónleika en allir hafa gert mistök," segir Grímur. „Það er allt í lagi að deila þessum mistökum. Svona vettvangur er bara góður, líka fyrir miðakaupendur. Þeir geta treyst því sem er að fara að gerast," segir hann og á þar við að ákveðinn gæðastimpill muni felast í vörumerkinu BÍT, eða PA (Promoters Alliance) eins og það útleggst á ensku. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira