Lífið

Lávarðurinn Eyfi tekur Valdimar undir sinn væng

Eyjólfur Kristjánsson og hljómsveitin Valdimar, með söngvarann Valdimar Guðmundsson í fararbroddi, spila saman á Innipúkanum. Ekki er ósennilegt að köflóttar skyrtur verði einkennisklæðnaður þessa óvænta bræðings.
Eyjólfur Kristjánsson og hljómsveitin Valdimar, með söngvarann Valdimar Guðmundsson í fararbroddi, spila saman á Innipúkanum. Ekki er ósennilegt að köflóttar skyrtur verði einkennisklæðnaður þessa óvænta bræðings. Mynd/GVA
„Þetta leggst mjög vel í mig. Það verður gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segir popparinn Eyjólfur Kristjánsson. Hann verður heiðursgestur tónlistarhátíðarinnar Innipúkans um verslunarmannahelgina og stígur þar á svið með hljómsveitinni Valdimar.

„Þeir eru tiltölulega nýir í bransanum en ég er gamall „lord“. Ég er búinn að heyra mikið í þeim í útvarpinu og ég hef bara gaman af þeim,“ bætir Eyfi við. Þetta verður í fyrsta sinn sem hann spilar á Innipúkanum.

„Ég er annálaður útipúkamaður en ég er nýbyrjaður að vera í bænum um verslunarmannahelgina,“ segir Eyfi, sem spilaði lengi vel í Kerlingarfjöllum þessa helgi og síðar meir á Þjóðhátíð í Eyjum. Þar hefur hann ekki verið síðan 2007.

Valdimar Guðmundsson, forsprakki Valdimars, hlakkar til að syngja með Eyfa. „Eyfi er einn af þessum toppum í poppinu. Ég veit ekki hvernig ég mun tækla það ef ég fer að syngja með honum Nínu. Ég hef heyrt marga reyna að syngja það lag og mistakast hörmulega,“ segir hann og hlær.

Síðasta ár var heiðursgestur Innipúkans sjálfur Raggi Bjarna sem hélt vel heppnaða tónleika með unglömbunum í Retro Stefson og verður því forvitnilegt að fylgjast með samstarfi Eyfa og Valdimars. Eyfi varð fimmtugur í apríl og gaf af því tilefni út safnplötu og fór í tónleikaferð um landið.

Innipúkinn fer fram í tíunda skipti í miðborg Reykjavíkur um verslunarmannahelgina. Hátíðin teygir sig að þessu sinni yfir þrjá daga og fer fram föstudags- til sunnudagskvölds, dagana 29.-31. júlí, og verður Iðnó aðaltónleikastaðurinn. Miðasala hefst í dag á Midi.is.

Meðal annarra flytjenda á hátíðinni verða Agent Fresco, Apparat, Jónas Sigurðsson, Skakkamanage, Pascal pinon og Snorri Helgason.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.