Átján holu fótboltagolfvöllur opnaður 1. júlí 2011 07:00 Fótboltagolfvöllurinn er skammt frá tjaldstæðinu í Þorlákshöfn og verður opinn í allt sumar. Mynd/Sveinbjörn „
Það hafa stundum verið settar upp þrautir, nokkrar holur, sem hafa verið uppi í nokkra daga, en þetta er fyrsti átján holu völlurinn," segir Sveinbjörn Ásgrímsson hjá Ölfus sporti. Fyrirtækið hefur opnað í Þorlákshöfn fyrsta fótboltagolfvöllinn á landinu. Fótboltagolf hefur verið stundað í einhverjum mæli hér á landi í nokkur ár, en hefur ekki farið mjög hátt. „Fólk er hægt og rólega að heyra af þessu og þetta vekur alltaf töluverða forvitni. Þetta er afþreying sem allir geta tekið þátt í. Við höfum verið að leyfa fólki að prófa og fáum alltaf jákvæð viðbrögð að leik loknum. Ég hef farið með fólk á öllum aldri, vana og óvana sparkara, og þessir óvönu geta þetta líka." Sveinbjörn segir þetta eins og á venjulegum golfvelli, brautir séu frá 35 metrum og upp í rúma 100 metra á lengd. „Þær eru par þrír til par fimm. Það eru skilti við hvern teig þar sem stendur hvað brautin er löng og hvað parið er á henni. Svo er teikning af brautinni, en það þarf ýmist að sparka í gegnum eitthvað eða fram hjá einhverju. Svo spila leikmenn bara brautina, telja spörkin og skrá á skorkort. Svo erum við með hlið á öllum brautum sem boltinn þarf að fara í gegnum. Ef fólk sparkar fram hjá hliðinu þarf að fara til baka, sem er ekkert sérstaklega gaman." Fótboltaþjálfarar hafa sýnt nýja vellinum áhuga að sögn Sveinbjörns, enda hefur tíðkast að íþróttin sé notuð til að brjóta upp æfingar. „En þetta er ekkert bara fyrir fótboltafólk. Þetta er hugsað sem viðbót við afþreyinguna hér á staðnum. Fótboltagolfið er eitthvað sem hægt er að grípa í. Við ætlum að reyna að hafa völlinn opinn eins lengi og við getum í sumar. Þetta er náttúrulega ólíkt þægilegra en venjulegur golfvöllur, það þarf ekki eins mikið viðhald." thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Fleiri fréttir Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Sjá meira