Steed Lord leikur og leikstýrir auglýsingu 5. júlí 2011 17:00
Hljómsveitin Steed Lord leikstýrir og leikur í nýrri auglýsingu fyrir sænska tískumerkið WeSC. Auk þess heyrist lag sveitarinnar, Don‘t Hurt Love, í auglýsingunni. Auglýsingin er fyrir sólgleraugu sem WeSC hannar í samstarfi við ítalska fyrirtækið Super. Svala Björgvinsdóttir, söngkona sveitarinnar, segir tökurnar hafa gengið vel og að fyrirtækin tvö séu himinlifandi yfir afrakstrinum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Steed Lord situr fyrir í auglýsingum WeSC því hljómsveitin hefur unnið náið með fyrirtækinu undanfarin ár. „Samstarf okkar hófst árið 2007 þegar við vorum beðin um að taka þátt í lagakeppni á vegum WeSC, Vice Magazine og Universal Records. Við gerðum það og unnum og höfum setið fyrir í öllum auglýsingum og bæklingum þeirra síðan þá. Fyrirtækið notar aðeins venjulegt fólk, listamenn og snjó- og hjólabrettafólk í auglýsingar sínar af því að það hentar stefnu fyrirtækisins betur.“ Annars er það að frétta af sveitinni að hún lauk nýverið tökum á nýju tónlistarmyndbandi sem unnið var í samstarfi við danshöfundinn Sonyu, sem er þekkt úr sjónvarpsþáttunum So You Think You Can Dance. „Síðan erum við að fara í það stóra verkefni að semja og taka upp næstu plötu. Við höfum ekki gefið út plötu í fullri lengd síðan Truth Serum kom út árið 2008 og við hlökkum mikið til að takast á við það verkefni,“ segir Svala. - sm
Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira