Umbreytingar snúa aftur 30. júní 2011 22:00 Shia LaBeouf og Rosie Huntington-Whiteley í hlutverkum sínum í þriðju Transformers-myndinni. Hún er sögð vera sú síðasta í þríleik Michaels Bay en enginn skyldi vanmeta ást Hollywood á gullkálfunum sínum.
Þriðja myndin um Umbreytingana verður frumsýnd um helgina en þetta á að vera síðasta myndin í þríleik Michaels Bay um vélrænu geimverurnar. Að þessu sinni er allur heimurinn undir. Transformers 3: Dark of the Moon tekur upp þráðinn þar sem mynd númer tvö, Revenge of the Fallen, skildi við hann. Sam Witwicky og vélrænu vinirnir hans horfast í augu við eitt erfiðasta verkefni sitt fram að þessu þegar undarlegt tæki finnst á tunglinu. Um er að ræða Örkina, vél sem leiðtogi vélrænu geimveranna, Sentinel Prime, bjargaði í miklu stríði milli Autobots (góðu gæjarnir) og Decepticons (vondu vélarnar). En vélin fellur í rangar hendur og Decepticons ógna fljótlega öllu lífríki jarðar. Michael Bay hefur lýst því yfir að Dark of the Moon sé síðasta myndin hans í þessum svokallaða þríleik. Og það er vel skiljanlegt að Bay vilji binda endahnútinn á þennan kafla í lífi sínu því framleiðslan hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig. Aðalstjarnan, Shia LaBeouf, hefur ekki reynst auðveldur í samstarfi enda þjakaður af stjörnustælum. Til að bæta gráu ofan á svart neyddist Bay til að reka aðalleikkonuna sína, Megan Fox. Leikstjórinn á heiðurinn af því að hafa uppgötvað Fox og gert hana að eftirsóttasta kvenkosti í blautum draumum unglingsdrengja. Fox launaði honum lambið gráa strax eftir fyrstu myndina og talaði um hann sem þrælahaldara og hélt uppteknum hætti eftir mynd númer tvö; þá ákvað Fox að nota Hitlers-samlíkinguna sem fór illa í meðframleiðanda myndanna, Steven Spielberg, og hann krafðist þess að Fox yrði látin fara. Og frú Fox ætti að vita það núna að Spielberg fær það sem hann biður um. Rosie Huntington-Whiteley, ung og óreynd undirfatafyrirsæta, var fengin til að hlaupa í skarðið. „Hún kann þetta hlutverk, að vera kynþokkafull fyrir framan tökuvélarnar,“ var það sem LaBeuof hafði um mótleikkonu sína að segja. Aðdáendur Transformers þurfa ekki gráta sig í svefn þótt Bay hafi lýst því yfir að þetta sé síðasta myndin hans. Tvær fyrstu myndirnar höluðu inn rúman einn og hálfan milljarð Bandaríkjadollara á heimsvísu í miðasölu og Brian Goldner, forstjóri leikfangarisans Hasbro sem hefur framleitt Transformers-leikföngin í 25 ár, sagði í samtali við fjölmiðla að hann vonaðist til að Bay myndi endurskoða ákvörðun sína. Þá ber auðvitað að líta til þess að Hollywood er aldrei spennt fyrir því að slátra gullkálfum sínum að nauðsynjalausu. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Lífið Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt Lífið Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Fleiri fréttir Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Sjá meira