Alan og Íris gefa út brúðkaupsballöðu 29. júní 2011 08:30 Alan Jones og Íris Hólm gefa út ballöðuna Stay With Me um miðjan júlí. Mynd/Valli
Tónlistarmaðurinn Alan Jones gefur um miðjan júlí út ballöðuna Stay With Me ásamt Írisi Hólm. „Þetta er hálfgert brúðkaupslag. Við vonum að þegar fólk heyri það vilji það nota lagið í brúðkaupunum sínum,“ segir Alan. Hann samdi lagið fyrir nokkru en ákvað að endurvinna það og fá Írisi til að syngja með sér. „Ég hef þekkt hana síðan í X-Factor. Hún er frábær söngkona og mig hefur alltaf langað að vinna með henni. Ég átti þetta lag og ég var handviss um að hún væri rétta manneskjan til að syngja það.“ Lagið var tekið upp í Hljódver.is af Markúsi B. Leifssyni. Steinþór Guðjónsson spilar á gítar og þær Ína Pétursdóttir og María Ólafsdóttir syngja bakraddir. Helgi Hannesson og Ágúst Þór spila einnig í laginu. Alan ætlar að gera myndband við Stay With Me þar sem brúðkaup verður meginþemað. Hann vonast til að fólk sendi sér ljósmyndir eða myndbandsbrot úr brúðkaupunum sínum til að nota í myndbandinu og gefur upp netfangið alanjones@simnet.is. Auk þess að gefa út nýja lagið er Alan með sólóplötu í bígerð, rétt eins og Íris Hólm, sem hefur að undanförnu sungið með Bermúda. „Ég vil taka minn tíma í þetta og sjá til þess að allt sé fullkomið áður en ég gef hana út,“ segir hann.- fb
Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira