Fer með aðalhlutverkið í Axlar-Birni hjá Vesturporti 25. júní 2011 22:00 Helgi leikur í verki Vesturports um Axlar-Björn og er einnig að gefa út plötuna Ég vil fara upp í sveit. Mynd/Stefán „
Þetta verður rosalega skemmtilegt. Ég er búinn að vera að spá í þetta í smá tíma að það væri gaman að fara á leiksvið aftur. Ég hef verið að skoða bisnessplön alltof lengi," segir Helgi Björnsson. Helgi leikur aðalhlutverkið í verki Vesturports byggt á þjóðsögunni um fjöldamorðingjann Axlar-Björn. Verkið verður frumsýnt í haust og mun Björn Hlynur Haraldsson leikstýra. Atli Rafn Sigurðarson mun að öllum líkindum leika á móti Helga og mögulega fara þeir með öll hlutverkin sjálfir en verkið er í mótun þessa dagana. Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós semur tónlistina og um búningahönnun sér tískuhönnuðurinn Mundi vondi. Verkið fékk fjögurra milljóna styrk frá velgerðarsjóði Auroru fyrr á árinu. Helgi steig síðast á leiksvið í söngleiknum Rent fyrir tíu árum. Hann er spenntur fyrir samstarfinu við Vesturport. „Þau reyndu að fá mig í Rómeó og Júlíu í London. Við höfum verið að tala um ýmislegt í gegnum tíðina en ég hef aldrei haft tíma því það er ákveðin binding sem felst í svona hlutverki." Hann er með fleiri járn í eldinum því þriðja plata hans og Reiðmanna vindanna, Ég vil fara upp í sveit, kemur út á mánudaginn. Auk titillagsins eru á plötunni fleiri gömul lög í nýjum búningum, þar á meðal Ég berst á fáki fráum - Sprettur, Það er svo geggjað að geta hneggjað og Angelía. „Við erum að róta aðeins í okkar dægurlagaarfi, ekki ósvipað og menn eins og Bob Dylan og Robert Plant hafa verið að gera," segir Helgi. Síðustu tvær plötur Helga og Reiðmannanna hafa selst eins og heitar lummur eða í 21 þúsund eintökum. Þú komst í hlaðið var langsöluhæst í fyrra og hefur núna selst í hátt í tólf þúsund eintökum. Helgi vill sem minnst spá fyrir um vinsældir nýju plötunnar. „Ég vona bara að fólki líki vel við hana eins og með hinar og svo sjáum við bara til hvernig hún plumar sig." Hann verður á landsmóti hestamanna sem fer fram 26. júní til 3. júlí þar sem hann ætlar að spila nýju lögin. Einnig má geta þess að Helgi ætlar að gera tónleikana sem hann hélt í Hörpunni á 17. júní að árlegum viðburði enda þóttu þeir takast sérlega vel. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira