Dettifoss í Hollywood-mynd 17. júní 2011 06:30 Mikilfenglegar náttúrusenur frá Íslandi birtast í nýjust mynd leikstjóransTerrence Malick, Tree of Life.
Stórbrotnar náttúrusenur úr íslensku landslagi birtast í kvikmyndinni Tree of Life eftir bandaríska verðlaunaleikstjórann Terrence Malick. Má meðal annars sjá stórfenglegar myndir af Dettifossi og Námaskarði. Myndin fékk gullpálmann á Cannes í lok maí og skartar Brad Pitt og Sean Penn í aðalhlutverkum. Tökurnar hér á landi stóðu yfir í þrjár vikur fyrir tveimur árum en Malick ku vera heillaður af landinu. „Myndin er eiginlega tvíþætt, annars vegar hefðbundin mynd með söguþræði og hins vegar náttúruskot sem voru öll tekin á IMAX 79mm,“ segir Einar Sveinn Þórðarson hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus, sem var Malick innan handar hér á landi. „Þetta var frekar lítill tökuhópur og við fórum á mjög erfiða staði úti um allt, notuðum þyrlu og krana, ferðuðumst upp á hálendið og tókum upp á stöðum sem fólk sér ekki vanalega frá Íslandi.“ Til stóð að Brad Pitt kæmi til landsins út af tökunum en hætt var við það. Einar Sveinn fékk hins vegar að sitja með Malick inni í stúdíó í Los Angeles þegar verið var að klippa myndina. „Vonandi kemur þessu náttúrumynd sem skeytt er inn í myndina út í séreintaki því þetta voru ansi magnaðar tökur.“ Malick hefur orð á sér fyrir að vera sérlundaður, hann hefur aðeins gert sjö myndir á löngum ferli en þær þykja vandaðar og eru í hávegum hafðar. Einar Sveinn segir leikstjórann hins vegar vera ákaflega venjulegan, hann vilji bara fá að hafa sitt einkalíf í friði. „Hann er mjög venjulegur, lærður heimspekingur og þessi mynd ber keim af því.“- fgg
Mest lesið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira