Friðrik Dór og Ólafur Arnalds taka upp dansvæn popplög 17. júní 2011 07:00 Friðrik Dór og Ólafur Arnalds eyða löngum stundum saman í hljóðveri um þessar mundir. Útkoman er dansvænt popp í ætt við tónlist Robyn. „
Þetta samstarf er rosalega hressandi,“ segir Friðrik Dór Jónsson, en hann vinnur um þessar mundir að nýju efni með tónlistarmanninum Ólafi Arnalds. Óhætt að segja að um óvænt samstarf sé að ræða, en tónlistarmennirnir koma hvor úr sinni áttinni hvað tónlistarstefnur varðar. Ólafur Arnalds hefur verið kenndur við nýklassík en Friðrik hefur farið fyrir nýrri kynslóð popptónlistarmanna hér á landi. Nýja efnið verður dansvænt en þó ekki alveg í takt við þau lög sem Friðrik Dór hefur gefið út hingað til. „Þetta er einhvers konar elektró, sem er nýtt fyrir mér en Ólafur hefur eitthvað verið að grúska í þessu.“ Ólafur segir tónlist þeirra félaga vera indí-skotið popp. „Þetta svipar kannski eitthvað til Robyn, svona dansvænt popp með elektrófíling.“ Ólafur og Friðrik Dór unnu saman að laginu „Leiðarlok“ sem hefur verið í mikilli spilun undanfarið. En hlusta strákarnir á tónlist hvor annars? „Ég get ekki sagt að ég hafi verið vel að mér í hans efni, en ég tók smá syrpu áður en við hittumst í fyrsta skipti,“ segir Friðrik Dór. Ólafur segist ekki hafa komist hjá því að heyra lögin hans Frikka. „Friðrik Dór er alls staðar. Að sjálfsögðu heyrir maður lögin af og til.“ Ólafur segir jafnframt að samstarf þeirra hafi gengið vel. „Þú finnur ekki auðveldari mann í samstarf en Friðrik. Hann gerir bara það sem maður segir honum að gera,“ segir Ólafur og hlær. Hvorugur var með það á hreinu hvenær von væri á lögunum. „Við erum ekki alveg vissir. Það þarf að klára ýmsa hluti fyrst, en ég held að það styttist í þetta,“ segir Ólafur að lokum. kristjana@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira