Brúðkaup Kardashian og Humphries í uppnámi 16. júní 2011 10:00 Ásakanir Brets Lockett þess efnis að Kim Kardashian hafi haldið framhjá verðandi eiginmanni sínum, Kris Humphries, hafa valdið því að fjölskylda NBA-leikmannsins vill helst að hann láti stúlkuna róa.NordicPhotos/getty
Eitt af brúðkaupum ársins verður hinn 31. október þegar raunveruleikadrottningin Kim Kardashian og NBA-leikmaðurinn Kris Humphries ganga í það heilaga fyrir allra augum. Fjölskylda leikmannsins er þó ekki alls kostar sátt. Fjölmiðlar vestanhafs loga yfir væntanlegu brúðkaupi raunveruleikadrottningarinnar Kim Kardashian og NBA-leikmannsins Kris Humphries. Leikmaðurinn bað hennar eftir að þau höfðu verið saman í sex mánuði og allt virtist leika í lyndi. En svo kom NFL-leikmaðurinn Bret Lockett fram í bandaríska tímaritinu In Touch og sagðist hafa verið elskhugi Kardashian í dágóðan tíma. Fyrirsætan íturvaxna vísaði þessu á bug og talsmaður hennar hótaði málsókn ef fréttin yrði ekki dregin til baka. Hvorki fjölskylda Humphries er sannfærð né In Touch, því blaðið birti í gær fréttir þess efnis að nánustu ættingjar Humphries hafi miklar áhyggjur af ráðahagnum. Og þeir vilja að hann hætti við allt saman og láti stúlkuna róa. „Þeir hafa áhyggjur af því að Kris eigi eftir að lenda í hrammi fjölmiðlanna og verða sér til skammar,“ hefur In Touch eftir heimildarmanni sínum. Netverjar hafa hins vegar tekið upp hanskann fyrir Kardashian og telja blaðið vera á ansi gráu svæði með fréttum sínum af parinu og meintu framhjáhaldi Kardashian. Fyrirsætan hefur ekki látið neinn bilbug á sér finna þrátt fyrir moldviðrið og hún mætti meðal annars galvösk í viðtal við spjallþáttastjórnandann Jay Leno. Þar kom fram að hún hefði vitað eftir tvo mánuði að Humphries væri maðurinn í hennar lífi en viðurkenndi jafnframt að hún hefði ekki átt von á bónorðinu. „Og viðbrögðin voru allt öðruvísi en ég átti von á.“ Þótt þau séu ástfangin upp fyrir haus hafa þau gert kaupmála og samkvæmt honum mun Humphries ekki eiga neitt tilkall til eigna fyrirsætunnar sem er talsvert ríkari en leikmaðurinn. Hjónabandið verður hinn 31. október og verður sjónvarpsstöðin E! á staðnum til að taka upp herlegheitin. Fjölmiðlar hafa þegar komist yfir svokallaðan gjafalista, sem þykir í dýrari kantinum, en meðal þess sem Kardashian vill fá í brúðargjöf er skeið og öskubakki. Skeiðin kostar 1.250 dali en öskubakkinn „eingöngu“ 840 dali. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira