Í fótspor Daft Punk 14. júní 2011 15:00
Danshljómsveitin Steed Lord var aðalnúmer raftónlistarhátíðarinnar Electronica Festival sem fram fór í Istanbúl um síðustu helgi. Að auki var tónlistarmyndband sveitarinnar notað til að auglýsa hátíðina á sjónvarpsstöðinni MTV. Electronica Festival er haldin á þriggja ára fresti og fer fram á fallegri strönd skammt fyrir utan Istanbúl. Hljómsveitin Daft Punk var aðalnúmer hátíðarinnar árið 2008 og því þurfti Steed Lord að fylla í stór spor. Að sögn Svölu Björgvinsdóttur, söngkonu sveitarinnar, höfðu meðlimir hljómsveitarinnar aldrei komið til Tyrklands áður og því þáðu þau boðið á hátíðina með þökkum. „Við erum með góðan aðdáendahóp hérna en vissum ekkert af því. Við spiluðum á besta tíma og fannst ótrúlega gaman enda er mikið lagt í hátíðina," segir Svala. Meðlimir Steed Lord lögðu á sig þrettán klukkustunda flugferð frá Los Angeles, þar sem þau eru búsett, til Istanbúl og viðurkennir Svala að tímaskyn þeirra hafi ruglast talsvert við ferðalagið. Sveitin flaug svo aftur til Bandaríkjanna daginn eftir tónleikana þar sem þeirra beið vinna í tengslum við sjónvarpsþáttinn So You Think You Can Dance. „Við þurftum að mæta í upptöku í sjónvarpssal fyrir So You Think You Can Dance því lagið Vanguardian verður notað í atriði sem Sonya Tayeh semur. Atriðið er sýnt í fyrsta þætti og við erum mjög spennt að sjá útkomuna. Annað lag eftir okkur verður svo notað í einum lokaþættinum," segir Svala og bætir við: „Þetta er mikill heiður fyrir okkur því það horfa margar milljónir á þættina og lögin sem hljóma undir dansatriðunum fá mikla athygli." - sm
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira