Lífið

Gera myndband fyrir ítalska pönksveit

Hrefna Hagalín og Kristín Bára Haraldsdóttir framleiddu tónlistarmyndband fyrir ítölsku pönksveitina The Minnies. Mynd/stefán
Hrefna Hagalín og Kristín Bára Haraldsdóttir framleiddu tónlistarmyndband fyrir ítölsku pönksveitina The Minnies. Mynd/stefán
Hrefna Hagalín og Kristín Bára Haraldsdóttir reka saman framleiðslufyrirtækið Krúnk, sem sá um framleiðslu tónlistarmyndbands ítölsku pönksveitarinnar The Minnies.

Hrefna og Kristín Bára eru staddar í Berlín um þessar mundir, þar sem upptökur á myndbandinu fóru fram, en Einar Snorri leikstýrir því. Söguþráðurinn er eins konar ástarsaga og fór leikarinn Tómas Lemarquis með hlutverk í myndbandinu. Hljómsveitin The Minnies var stofnuð árið 1994 og hefur í gegnum árin eignast tryggan aðdáendahóp víða um heim. Hrefna og Kristín Bára framleiddu áður stuttmyndina Knowledgy og auglýsingu fyrir fatahönnuðinn Munda, svo fátt eitt sé nefnt.

Að sögn Hrefnu gengu tökur vel fyrir sig og nú er verið að ganga frá allri eftirvinnslu. „Þetta voru rosalega fínar tökur og vinalegur tökuhópur og þetta gekk allt eins og í sögu,“ segir hún. Þær stöllur hafa verið með annan fótinn í Berlín frá því í febrúar og unnið að ýmsum verkefnum með Einari Snorra. „Við erum ekki fluttar hingað, við fluttum til dæmis ekki búslóðina með okkur út, heldur langaði okkur að prófa að vinna úti og fannst Berlín henta vel því héðan er stutt að fara til annarra borga í Evrópu. Við ætlum bara að sjá hvernig hlutirnir þróast og ef vel gengur væri gaman að vera hér áfram. Annars sjáum við bara hvað setur,“ segir Hrefna að lokum.- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.