Ráðherra fagnar risamynd 10. júní 2011 08:00 Katrín Júlíusdóttir segist ætla að gera allt sem hún geti fyrir Ridley Scott og Charlize Theron og er mjög ánægð með að kvikmyndagerðarmaðurinn ætli að taka upp hluta af stórmynd sinni Prometheus hér á landi. Útkoman geti haft jákvæð áhrif á kynningu á Íslandi.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir komu Ridley Scott verulega góðar fréttir fyrir Ísland. Hún vill líka horfa til indverska kvikmyndaiðnaðarins í Bollywood enda hafi hann mikil áhrif á ferðamannastraum frá næstfjölmennasta landi heims. Fréttablaðið greindi frá því á miðvikudag að gengið hefði verið frá því að hluti úr stórmynd Ridley Scott, Prometheus, yrði tekinn upp hér á landi. Meðal þeirra stórstjarna sem koma til landsins eru Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron og ástralski stórleikarinn Guy Pearce. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra er mjög ánægð með heimsókn Ridley Scott og tökuliðs hans. „Ísland er enda mjög áhugaverður staður og það er mjög gaman þegar svona stórmynd kemur til Íslands því það vekur athygli á landinu sem tökustað og skilur eftir verðmæti í þjóðarbúinu.“ Katrín segir að iðnaðarráðuneytið hafi reynt að styðja við þennan iðnað. „Við gerum allt sem við getum fyrir þessa aðila; þetta er atvinnu- og verðmætasköpun auk þess sem þessu fylgir mikil landkynning.“ Katrín bendir jafnframt á að rekin hafi verið mikil landkynning á Íslandi gegnum verkefnið Film in Iceland og slíkt geti skipt sköpum. „Þetta er mjög spennandi því svona verkefni skila sér út í ferðamannageirann hér á landi, fólk sér landið á hvíta tjaldinu og vill koma hingað. Og við höfum verið að horfa til fleiri átta eins og Bollywood, því þar er beint samband milli kvikmyndageirans og ferðamannastraumsins.“ Kvikmyndagerðarmenn sem hingað koma fá tuttugu prósenta endurgreiðslu á framleiðslukostnaði hér og segir Katrín að Ísland verði að standa jafnfætis öðrum þjóðum á þeim grundvelli. Lög um endurgreiðslu verða endurskoðuð á þessu ári og segir Katrín vel koma til greina að gerðar verði einhverjar breytingar til að opna Ísland enn frekar. „Við munum gera allt sem við getum fyrir þessa aðila.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira